Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verð á fiski­mjöli í hæstu hæðum

Read Full Article →

Alþjóð­legt verð á fiski­mjöli hefur náð met­hæðum eftir mikinn sam­drátt í ansjósu­veiðum við Perú, Ekvador og Chile. Hækkunin skiptir máli fyrir ís­lenskan sjávarút­veg en Brim, Síldar­vinnslan og Ís­félagið fram­leiða öll mjöl og lýsi úr upp­sjávar­fiski og geta notið góðs af hærra heims­markaðsverði. Á móti getur þróunin þrýst á rekstur fisk­eldis­fyrir­tækja þar sem fiski­mjöl og fiskilýsi eru mikilvæg hráefni í fóður­fram­leiðslu. Sam­kvæmt um­fjöllun Bloom­berg hefur verð á perúsku hágæða fiski­mjöli hækkað um 80% á einu ári og var komið í 2.990 dali á tonn í lok júní. Það er hæsta verð sem mælst hefur. Ástæðan er skortur á ansjósu, einni mikilvægustu hrávöru heims í fram­leiðslu fiski­mjöls og fiskilýsis. Bloom­berg segir heims­fram­leiðslu á ansjósu hafa dregist saman um allt að 40% frá fyrra ári. Stjórn­endur í greininni meta að heims­fram­leiðsla fiski­mjöls hafi dregist saman um 30 til 40%. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article