Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Framleiðslan aldrei meiri en tekjurnar minnkuðu Brynjólfur Þór Guðmundsson Framleiðsla í fiskeldi jókst um sautján prósent í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Alls voru framleidd 64.417 tonn af eldisfiski. Lax var langstærstur hluti þess, 58.717 tonn. Útflutningsverðmæti jókst ekki í samræmi við aukna framleiðslu. Fiskeldisafurðir voru fluttar út fyrir 53,4 milljarða króna í fyrra. Það er einu prósenti minna en árið áður þrátt fyrir að magnið sem var flutt út hafi aukist um tólf prósent. Fiskeldi á Vestfjörðum. RÚV / Kveikur Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu hefst í dag Brynjólfur Þór Guðmundsson Aðeins tvennt er á dagskrá þingfundar í dag, þess fyrsta sem haldinn er eftir tveggja vikna fundahlé vegna sveitarstjórnarkosninga. Fyrst er óundirbúinn fyrirspurnatími. Stóra málið er þó seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður. Fyrri umræðan fór fram á þremur dögum í mars og stóð yfir í um 22 klukkustundir. Meirihluti utanríkismálanefndar lagði til að spurningunni yrði breytt. Minnihlutinn mótmælti því að málið væri tekið út úr nefnd og sent til umræðu í þingsal. Þingfundur hefst klukkan þrjú. Alþingi kemur saman eftir tveggja vikna fundahlé. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ahmadinejad sagður hafa átt að taka við stjórnartaumum í Íran Mahmoud Ahmadinejad, fyrrum forseti Írans, var í stofufangelsi í Íran þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum. Gerð var árás við heimili hans sem átti að gera honum kleift að flýja. Ekkert er vitað hvar hann heldur til eða hvort hann sé á lífi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hærri stýrivextir, meira atvinnuleysi og minni hagvöxtur Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað stýrivexti úr 7,50 í 7,75 prósent. Nefndin vísar til viðvarandi verðbólgu yfir fimm prósentum og aukinna verðbólguvæntinga til skamms tíma. Seðlabankinn spáir minni hagvexti og meira atvinnuleysi en áður. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölþáttaógnir Áróðursherferðir og aðrar fjölþáttaógnir vaxandi áskorun Fjölþáttaógnir og áróðursherferðir eru viðvarandi áskoranir vestrænna lýðræðisríkja og baltnesku ríkin hafa langa reynslu af þessu. Ástæða er til að óttast tilraunir í þessa veru fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hér á landi í haust, segia sérfræðingar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að 17 stiga hiti suðvestan til Sólin skín á fólk á suðvesturhorninu í dag en norðan og austan til verður þoka og úrkoma. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Pútín segir samskipti landanna hafa náð áður óþekktum hæðum Rússlandsforseti og Kínaforseti fóru fögrum orðum um samskipti og samvinnu landa sinna í Bejing í dag. Xi Jinping sagði að mikilvægt væri að vopnahlé kæmist á sem fyrst í Mið-Austurlöndum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína 430 aðgerðarsinnar í haldi Ísraela Fólkið var um borð í skipum á leið til Gaza með hjálpargögn þegar ísraelski herinn stöðvaði skipin og handtók aðgerðarsinna um borð. Ein þeirra handteknu er systir írska forsetans. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mesta mannfall í einum mánuði síðan í júlí Brynja Dögg Friðriksdóttir Að minnsta kosti þrír, þar af eitt barn, og 16 slösuðust í árás Rússa á fjölbýlishús í Odessu 6. apríl. EPA / IGOR MASLOV Að minnsta kosti 238 almennir borgarar voru drepnir og 1.404 særðust í árásum Rússa í Úkraínu í apríl. Þetta er mesta mannfall í einum mánuði síðan í júlí 2025, samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á fundi Öryggisráðsins á mánudaginn. Kyiv Independent greinir frá. Það voru einkum langdrægir drónar og flugskeyti sem ollu mannfallinu. Margar árásanna voru gerðar á bæi og borgir fjarri víglínunni. Um 54% þeirra sem drepnir voru í apríl urðu fyrir árásum nærri víglínunni. Árásir halda áfram í Úkraínu. Að minnsta kosti 11 eru særðir eftir árásir í nokkrum héruðum Úkraínu í nótt. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Pentagon fækkar um eitt stórfylki í Evrópu Bandaríska varnarmálaráðuneytið ætlar að fækka um eitt stórfylki af fjórum í Evrópu. Hermenn sem til stóð að yrðu sendir til Póllands fara ekki þangað að svo komnu. 19. maí 2026 kl. 23:13ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Stuðningur Kína skipti Rússa sköpum í stríðinu Albert Jónsson segir stuðning Kína skipta Rússa sköpum í stríðinu í Úkraínu og telur Trump-stjórnina hafa gert Bandaríkin óáreiðanlegri í augum margra bandamanna. 19. maí 2026 kl. 22:06INNLENDAR FRÉTTIR Körfubolti Fagna Íslandsmeistaratitlinum heima Grindvíkingar hafa í dag fagnað Íslandsmeistaratitli karla í körfubolta sem vannst í Skagafirði í gærkvöldi. Leikmenn liðsins komu með bikarinn til Grindavíkur á sjöunda tímanum í kvöld í langri bílalest. 19. maí 2026 kl. 21:54INNLENDAR FRÉTTIR Íþróttir Göngufótbolti með engum markmanni Göngufótbolti er ný íþróttagrein sem verið er að kynna víða um land. Þar er eðli málsins samkvæmt bannað að hlaupa, bannað að tudda og þá má enginn vera í markinu. 19. maí 2026 kl. 21:50INNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Byggja upp innviði fyrir gervigreind með fimm sinnum meira rafmagni Gagnaver Verne á Ásbrú fær fimm sinnum meira rafmagn en áður, með nýju tengivirki sem tekið var í notkun í dag. Bæjarstjórinn segir líklegt að gagnaverum þar fjölgi. 19. maí 2026 kl. 20:36ÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal meistari - City missteig sig gegn Bournemouth Arsenal er enskur meistari í fótbolta í 14. sinn. Manchester City gerði 1-1 jafntefli gegn Bournemouth í kvöld og getur ekki náð Arsenal í lokaumferðinni á sunnudag. Tottenham er hins vegar enn í fallhættu. 19. maí 2026 kl. 20:11INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Telur að rafbyssan hafi ekki orsakað að kviknað hafi í manninum „Drægnin var ekki með þeim hætti að við teljum það mögulegt,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Lögregla beitti rafbyssu í gær við afskipti af manni sem talinn er hafa borið að sér eld. 19. maí 2026 kl. 20:01MENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp „Fóstbræður menntuðu þjóðina í öðruvísi gríni“ Sketsaþættir og grín voru til umræðu í Miðstöðinni á dögunum. Sérfræðingar þáttarins voru leikkonan og uppistandarinn Birna Rún Eiríksdóttir og leikarinn og sviðshöfundurinn Pálmi Freyr Hauksson. 19. maí 2026 kl. 19:03ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Pútín í opinberri heimsókn til Beijing Dagný Hulda Erlendsdóttir Pútín Rússlandsforseti kom í tveggja daga heimsókn til Xi Jinping forseta Kína í dag. Nokkrir dagar eru síðan Bandaríkjaforseti heimsótti Beijing. Með Pútín í för eru ráðherrar og stjórnendur stórfyrirtækja í Rússlandi. Kínverjar og Rússar hafa eflt samskiptin eftir að Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og hafa sætt refsiaðgerðum Vesturvelda. Eftir það varð Kína enn mikilvægari útflutningsmarkaður fyrir Rússland en þangað flytja þeir stóran hluta af olíuframleiðslu sinni. Pútín lýsti því yfir fyrir brottför að hann væri sannfærður um að þeir forsetarnir myndu efla tengsl ríkjanna á ýmsan máta. Pútín við komuna til Beijing í dag. EPA / VLADIMIR SMIRNOV / SPUTNIK / KREMLIN POOL 19. maí 2026 kl. 18:15ERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Ebólufaraldurinn gæti varað í nokkra mánuði Ebólutilfellum fjölgar hratt í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og tveir hafa greinst í Úganda. Áhyggjur eru af því að faraldurinn verði bæði stór og vari lengi. 19. maí 2026 kl. 18:09ÍÞRÓTTIR Fótbolti Southampton vísað úr umspilinu vegna njósna Einar Örn Jónsson Hneyksli skekur nú enskan fótbolta. Southampton hefur verið vísað úr umspilinu um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð vegna njósna, en liðið var komið í úrslitaleik umspilsins. Greinandi á vegum Southampton var staðinn að því að mynda æfingu Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik liðanna 7. maí síðastliðinn. Boro kvartaði daginn eftir og enska deildin (EFL) tók málið fyrir. Í kjölfarið var bætt við ásakanirnar fleiri sams konar brotum Southampton frá í desember í fyrra og apríl í ár. Umfjöllun BBC um málið má lesahér og svo var fjallað um málið í Sportrásinni síðastliðinn sunnudag og má hlusta á þá umfjöllun hér. Nathan Wood, leikmaður Southampton. Hann er saklaus af njósnum en missir, eins og aðrir leikmenn liðsins, af sæti í úrvalsdeildinni. EPA / VINCE MIGNOTT 19. maí 2026 kl. 17:51INNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Ekki tekið á móti fleiri hælisleitendum verði af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að sveitarfélagið taki ekki á móti fleiri hælisleitendum verði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks myndaður, flokkarnir hafi báðir talað fyrir átaki í málaflokknum. 19. maí 2026 kl. 17:34INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Áætlað að aðildarviðræður við ESB kosti 1,9 milljarða Samþykki Íslendingar að hefja aðildarviðræður við ESB á ný er talið að þær muni taka um eitt og hálft til tvö ár og muni kosta um 1,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar. 19. maí 2026 kl. 17:27INNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Leita manns sem elti unga stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitin leita manns sem elti unga stúlku með hnífi í Hafnarfirði fyrr í dag. 19. maí 2026 kl. 17:25INNLENDAR FRÉTTIR Austurland Hreindýrstarfur tók sundsprett í Eskifirði Staðarhaldari á Mjóeyri rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur stakk sér til sunds í Eskifirði eftir að hafa styggst. Dýrið tók drjúgan sundsprett. 19. maí 2026 kl. 17:10INNLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál „Íslensk þekking hefur komið sér mjög vel á Indlandi“ Forsætisráðherra sótti leiðtogafund Norðurlandanna og Indlands í dag. Hún segir fríverslunarsamning EFTA við Indland hafa skilað miklu og að það sé gagnlegt að geta átt í reglulegum, beinum samskiptum við forsætisráðherra Indlands. 19. maí 2026 kl. 17:00INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvernig myndar fólk meirihluta og hvað eru formlegar viðræður? Að loknum sveitarstjórna