Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Fílabeinsströndin - Noregur

Read Full Article →

Fyrri hálfleikur var bragðdaufur en Nusa hleypti lífi í leikinn með frábæru skoti upp í samskeytin fjær undir lok hálfleiksins. Amad Diallo reyndist leikbreytir Fílabeinsstrandarinnar. Hann varði skalla Norðmanna á línu og skoraði svo sjálfur eftir glæsilegt einstaklingsframtak skömmu síðar. Hann tók þríhyrning við Pepe, tók góða snertingu og setti knöttinn í fjærhornið. Að lokum voru það Bobb og Berg sem sköpuðu saman fullkomið marktækifæri fyrir Haaland, sem var nærri því að klúðra með hálfgerðu hælskoti. Norðmenn unnu því sigur í útsláttarkeppni í fyrsta sinn en þeir eru á sínu fimmta móti. Áður hafði liðið komist í 16-liða úrslit á HM 1938 og 1998. Þeir mæta Brasilíumönnum í 16-liða úrslitum.

Share this article