Fílabeinsströndin komst yfir með marki Franck Kessie á 30. mínútu eftir ágætan undirbúning Diomande og varið skot frá Diallo. Útlitið var svart fyrir Þjóðverja þangað til að Nagelsmann tók þrefalda skiptingu. Hann tók Musiala, Sane og Pavlovic út fyrir Leweling, Undaz og Amiri þegar Fílabeinsströndin leiddi. Þetta bar ávöxt því Amiri átti frábæra sendingu á Undav sem stýrði boltanum í netið á 68. mínútu. Fílabeinsströndin fékk kjörið tækifæri til að skora sigurmarkið í uppbótartíma eftir frábæran undirbúning Nicolas Pepe en Adingra fór afar illa að ráði sínu í kjörstöðu. Felix Nmecha, sem hefur verið einn besti leikmaður mótsins hingað til, fann Undav svo í miðjum teignum með afar fastri og nákvæmri sendingu. Undav tók snertingu, sneri sér á punktinum og setti boltann í netið.