Fílabeinsströndin vann Ekvador 1-0 í leik liðanna í E-riðli á HM karla í fótbolta í nótt. Þrátt fyrir fjörugan leik var markalaust lengst af. Ekvador átti til að mynda tvö skot í slá og Fílabeinsstrendingar fengu fjölda færa. Amad Diallo, leikmaður Manchester United, kom af varamannabekknum og skoraði sigurmarkið. Hann stýrði fyrirgjöf Singo afar rólegur í fjærhornið með viðstöðulausu skoti. Þýskaland vann Curacao 7-1 og er því í efsta sæti en Fílabeinsstrendingar eru í öðru sæti með sín þrjú stig. Ekvador og Curacao eru án stiga.