Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Curaçao - Fílabeinsströndin

Read Full Article →

Fílabeinsströndin vann 0-2 sigur gegn Curaçao og fer áfram upp úr riðlinum í fyrsta skipti á HM. Þetta er í fjórða skipti sem liðið tekur þátt en áður fór gullaldarlið Fílanna rakleiðis heim af HM 2006, 2010 og 2014. Curaçao hafa lokið leik á þessu heimsmeistaramóti en munu seint gleyma jöfnunarmarki sínu gegn Þjóðverjum í fyrsta leiknum og sögulegu stigi gegn Ekvador. Þeir slógu met sem fámennasta þjóð í sögu HM. Þessi 150.000 manna þjóð mun sennilega halda því meti í ágætis tíma. Sigurinn var nokkuð þægilegur fyrir Fílabeinsströndina. Nicolas Pepe sýndi hvers hann er megnugur í dag en hann skoraði bæði mörk liðsins.

Share this article