Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tókst það sem gullaldarkynslóð Fílanna náði aldrei

Read Full Article →

Fílabeinsströndin vann 0-2 sigur gegn Curaçao og fer áfram upp úr riðlinum í fyrsta skipti á HM. Þetta er í fjórða skipti sem liðið tekur þátt en áður fór gullaldarlið Fílanna rakleiðis heim af HM 2006, 2010 og 2014. Í því liði voru Didier Drogba, Yaya Toure og Kolo Toure máttarstólpar en einnig voru sterkir leikmenn líkt og Salomon Kalou, Emmanuel Eboue og Didier Zokora. Nú hafa Nicolas Pepe, Amad Diallo og Yan Diomande gert það sem gullkynslóðin náði aldrei. Geta gengið stoltir frá borði Curaçao hafa lokið leik á þessu heimsmeistaramóti en munu seint gleyma jöfnunarmarki sínu gegn Þjóðverjum í fyrsta leiknum og sögulegu stigi gegn Ekvador. Þeir slógu met sem fámennasta þjóð í sögu HM. Þessi 150.000 manna þjóð mun sennilega halda því meti í ágætis tíma. Þægilegur sigur Sigurinn var nokkuð þægilegur fyrir Fílabeinsströndina. Nicolas Pepe sýndi hvers hann er megnugur í dag en hann skoraði bæði mörk liðsins. Það fyrra kom eftir klaufagang í vörn Curaçao en jafnframt ágætis tilþrif Diomande á 7. mínútu. Sangare átti svo hnitmiðaða sendingu á Pepe sem tók snertingu og kláraði virkilega vel í fjærhornið á 64. mínútu. Hér má sjá mörkin. Lið Fílabeinsstrandarinnar fór áfram upp í riðlakeppni á HM í fyrsta sinn. Þetta er í fjórða sinn sem liðið tekur þátt en gullaldarlið Fílanna náði aldrei upp úr riðli.

Share this article