Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Prófraun fyrir Brassa: Noregur eina liðið sem þeir hafa ekki unnið

Read Full Article →

Norðmenn gerðu nóg í kvöld gegn Fílabeinsströndinni og unnu 1-2 sigur. Norðmenn unnu sigur í útsláttarkeppni í fyrsta sinn en þeir eru á sínu fimmta móti. Áður hafði liðið komist í 16-liða úrslit á HM 1938 og 1998. Þeir mæta Brasilíumönnum í 16-liða úrslitum. Það er ágætis veganesti fyrir Norðmenn að þeir eru eina þjóðin sem hefur mætt Brasilíu og aldrei tapað. Norðmenn hafa unnið tvisvar og gert tvö jafntefli í fjórum leikjum. Öll mörkin: Norðmenn eru komnir í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-2 sigur á Fílabeinsströndinni. Þar bíða þeirra Brasilíumenn en Norðmenn eru eina þjóðin sem Brasilía hefur ekki unnið í kappleik - og það í fjórum tilraunum. Haaland tæpur Haaland hreinlega glotti leikslok því hann vissi hvað markið hans var klunnalegt. Hann var svo innilega nálægt því að klúðra gefnu marki. En það breytir því ekki að hann er kominn með fimm mörk í þremur leikjum. Messi er markahæstur með sex mörk. Mbappe, Dembele og Vinicius fylgja á eftir með fjögur. Í kvöld er sviðið Frakkanna tveggja. Gangur leiksins Fyrri hálfleikur var bragðdaufur en Nusa hleypti lífi í leikinn með frábæru skoti upp í samskeytin fjær undir lok hálfleiksins. Amad Diallo reyndist leikbreytir Fílabeinsstrandarinnar. Hann varði skalla Norðmanna á línu og skoraði svo sjálfur eftir glæsilegt einstaklingsframtak skömmu síðar. Hann tók þríhyrning við Pepe, tók góða snertingu og setti knöttinn í fjærhornið. Að lokum voru það Bobb og Berg sem sköpuðu saman fullkomið marktækifæri fyrir Haaland, sem var nærri því að klúðra með hálfgerðu hælskoti.

Share this article