Norðmenn fara áfram í 8 liða úrslit. Brasilía kemst ekki upp úr 16 liða úrslitum í fyrsta sinn síðan 1990. Norðmenn unnu 2-1 og Erling Braut Haaland er hetja liðsins. Það er óhætt að segja að þjóðhátíðarstemning sé í Noregi. Hundra þúsund manns fylla stræti Óslóar þrátt fyrir að klukkan sé hálftvö aðfaranótt mánudags. Á forsíðum helstu miðla landsins er sigrinum líkt við kraftaverk og Haaland segir þetta einn klikkaðasta daginn í sögu Noregs. Haaland kláraði þetta fyrir Norðmenn, fyrst með kröftugum skalla í fjærstöng og svo með bylmingsskoti fyrir utan teig í stöng og inn. Bruno Guimaraes er skúrkur Brassa þar sem hann klúðraði vítaspyrnu snemma leiks þegar Nyland varði slakt víti hans. Þetta er fyrsta vítaklúður Brasilíumanns utan vítaspyrnukeppni í 40 ár, frá því að Zico klúðraði á HM 1986. Endrick fékk eitt besta færi leiksins í stöðunni 0-0 þegar hann var nýkominn inn á en vippa hans fór fram hjá. Neymar spilaði en var vanstilltur Neymar kom í fyrsta sinn við sögu á mótinu og virkaði vanstilltur. Hann var manna fremstur í að hleypa leiknum upp í vitleysu undir lok leiks þegar Brasilíumenn sáu að HM-draumurinn var að hverfa. Svarta beltið í að mæta Brasilíu Brassar fengu líflínu undir lok leiks þegar Østigard fór með olnbogann í andlitið á Casemiro. Neymar fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Nær komust þeir gulklæddu ekki og Norðmenn sanna enn og aftur að þeir eru með svarta beltið í að mæta Brössum. Norðmenn eru eina liðið í sögunni sem Brasilía hefur aldrei unnið í fótbolfa. Leikirnir eru orðnir fimm, Norðmenn hafa unnið þrjá og niðurstaðan hefur tvisvar verið jafntefli. Allir með sjö mörk Haaland jafnar Mbappe og Messi í keppninni um markakóngstitilinn, þeir eru allir þrír með sjö mörk. Hér má sjá helstu atvik: Forsíður norskra miðla eru þaktar fréttum af glæstum sigri Noregs á Brasilíu. Erling Braut Haaland er hetja dagsins og segir þetta einn klikkaðasta daginn í sögu Noregs. Mannhaf fyllir stræti Óslóar um miðja nótt.