Norðmenn fara áfram í 8-liða úrslit og Brasilía kemst ekki áfram úr 16-liða úrslitum í fyrsta sinn frá 1990. Norðmenn unnu 2-1 sigur og Haaland var hetjan. Það er óhætt að segja að mikil þjóðhátíðarstemning sé í Noregi. 100.000 manns hafa fyllt stræti Osló þrátt fyrir að klukkan sé hálf tvö á aðfaranótt mánudags. Þá keppast forsíður helstu miðla landsins um að kalla þetta kraftaverk og Haaland segir þetta einn sjúkasta dag í sögu Noregs. Erling Braut Haaland kláraði þetta fyrir Norðmenn. Fyrst með kröftugum skalla á fjærstöng og svo með bylmingsskoti fyrir utan teig í stöng og inn. Bruno Guimaraes er skúrkur Brassa en hann klúðraði vítaspyrnu snemma leiks. Nyland varði slakt víti hans og var þetta fyrsta vítaklúður Brasilíumanns (utan vítaspyrnukeppni) í 40 ár, eða frá því að Zico klúðraði á HM 1986. Endrick fékk einnig eitt besta færi leiksins í stöðunni 0-0 þegar hann var nýkominn inn á en vippa hans fór fram hjá. Neymar spilaði en var vanstilltur Neymar kom við sögu í fyrsta sinn á mótinu og virkaði vanstilltur. Hann var manna fremstur í að hleypa leiknum upp í vitleysu undir lok leiks þegar Brasilíumenn sáu að HM-draumurinn var að hverfa. Brassar fengu þó líflínu undir lok leiks þegar Ostigard fór með olnbogann í andlitið á Casemiro. Neymar fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Nær komust þeir gulklæddu þó ekki og Norðmenn sanna enn eftir að þeir eru með svarta beltið í að mæta Brössum. Svarta beltið í að mæta Brasilíu Norðmenn eru eina liðið í sögunni sem Brasilía hefur aldrei unnið í kappleik. Leikirnir eru nú fimm og Norðmenn hafa unnið þrjá og tvisvar hefur niðurstaðan verið jafntefli. Allir með sjö Haaland jafnar þá Mbappe og Messi í keppninni um markakóngstitilinn. Allir þrír eru þeir með sjö mörk. Hér má sjá helstu atvik: Forsíður norsku miðlanna eru þaktar í fréttum af glæstum sigri Noregs gegn Brasilíu. Erling Braut Haaland, hetja dagsins, segir þetta einn sjúkasta dag í sögu Noregs. Gífurlegt mannhaf fyllir stræti Osló um miðja nótt.