Leikið verður í G, H og I riðlum í dag og fram undir morgun. Dagskráin hefst á því að klára I-riðil. Þar stendur stórleikur Frakklands og Noregs upp úr þar sem liðin munu berjast um efsta sæti riðilsins. Á sama tíma spila Senegal og Írak sem bæði eru stigalaus. Ljóst er að ekkert annað en sigur dugar liðunum til að eygja áfram von um að komast í 32-liða úrslitin. Á miðnætti tekur svo við spennandi lokaumferð H-riðils. Þar er ekkert lið enn öruggt áfram. Spánverjar sem hafa fjögur stig mæta Úrúgvæ sem hafa tvö stig. Grænhöfðaeyjar með sín tvö stig spila svo við Sádi-Arbaíu sem er með eitt stig. Svo gæti farið að jafntefli myndi duga Grænhöfðeyjum til að enda í 2. sæti ef Spánn vinnur Úrúgvæ. Það myndi þá jafnframt sæta til tíðinda ef Grænhöfðaeyjar færu áfram en Úrúgvæ sæti eftir. Lokaumferð G-riðils er svo leikin klukkan 3:00 eftir miðnætti. Í henni mætast Egyptaland og Íran og svo Nýja-Sjáland og Belgía. Öll liðin eiga enn möguleika á því að komast áfram. Egyptar hafa fjögur stig, Íran og Belgía tvö stig hvort lið og Ný-Sjálendingar eru með eitt stig. Dagskráin: 19:00 Noregur - Frakkland (RÚV) 19:00 Senegal - Írak (RÚV 2) 00:00 Grænhöfðaeyjar - Sádi-Arabía (RÚV 2) 00:00 Spánn - Úrúgvæ (RÚV) 03:00 Nýja-Sjáland - Belgía (RÚV) 03:00 Egyptaland - Íran (RÚV 2)