Lokaumferð riðlakeppninnar heldur áfram í dag og sex leikir eru á dagskrá. Í lokaumferðinni fara leikirnir í hverjum riðli fram samtímis. Við byrjum í E-riðli. Þar er Þýskaland komið áfram en annað er óráðið. Þýskaland er með fullt hús stiga eftir 2 leiki og liðið mætir Evkador sem er með eitt. Draumur Curaçao um 32-liða úrslit er enn opinn en til þess að eiga möguleika á því þarf liðið sigur í leik sínum við Fílabeinsströndina. Vinni liðið í kvöld endar það í þriðja sæti og getur farið áfram sem þriðja sætis lið. Þá er einnig möguleiki á því að liðið endi í öðru sæti riðilsins með sigri í sínum leik og ef Þýskaland vinnur Ekvador. Í F-riðli mætast Japan og Svíþjóð. Japanir eru með fjögur stig og Svíþjóð þrjú og því mikið í húfi í leiknum. Hollendingar mæta Túnisum sem eru þegar úr leik. Holland er hins vegar með fjögur stig. Loks er það D-riðill. Þar eru Bandaríkjamenn komnir áfram en liðið spilar við Tyrkland sem þegar er dottið úr leik. Þá verður spenna í leik Ástralíu og Paragvæ sem bæði eru með þrjú stig. Dagskráin: 20:00 Ekvador - Þýskaland (RÚV) 20:00 Curaçao - Fílabeinsströndin (RÚV 2) 23:00 Japan - Svíþjóð (RÚV) 23:00 Túnis - Holland (RÚV 2) 02:00 Paragvæ - Ástralía (RÚV) 02:00 Tyrkland - Bandaríkin (RÚV 2)