Lokaumferð riðlakeppninnar á HM í fótbolta hefst í dag og þá fara línur að skýrast fyrir 32 liða úrslitin sem hefjast á sunnudaginn. Nú í lokaumferðinni eru leikir hvers riðils leiknir á sama tíma. Alls fara sex leikir fram í kvöld og hefjast fyrstu leikirnir klukkan 19 í B-riðli. Sviss og Kanada mætast þá í úrslitaleik um toppsæti riðilsins. Bæði lið eru taplaus. Kanada hefur komið skemmtilega á óvart á heimavelli og er nálægt því að tryggja sér sæti í útsláttarkeppni HM í fyrsta sinn. Á sama tíma mætast Bosnía og Katar í leik þar sem bæði lið þurfa sigur til að eiga raunhæfa möguleika á að komast áfram. Geta Skotar skákað Brasilíu? Næstu leikir hefjast svo klukkan 22 og þá verður annar afar athyglisverður leikur þegar Skotland og Brasilía eigast við. Skotar unnu Haítí í fyrstu umferð 1-0 en töpuðu svo fyrir Marokkó 1-0. Brasilía og Marokkó eru efst með 4 stig en liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferðinni. Marokkó mætir stigalausu botnliði Haítí á sama tíma. Skotar eru með 3 stig og þeim gæti dugað jafntefli gegn Brasilíu til að komast áfram sem eitt af liðunum með bestan árangur í þriðja sæti. Lokaumferðin í A-riðli hefst svo kl. eitt eftir miðnætti. Mexíkó er þegar öruggt áfram með fullt hús stiga en allt er ennþá opið fyrir hin liðin. Suður Kórea er með 3 stig og mætir Suður Afríku sem er með eitt stig eins og Tékkar. Mexíkó mætir Tékklandi. Leikir dagsins 19:00 Sviss – Kanada (RÚV) 19:00 Bosnía – Katar (RÚV 2) 22:00 Skotland – Brasilía (RÚV) 22:00 Marokkó – Haítí (RÚV 2) 01:00 Tékkland – Mexíkó (RÚV) 01:00 Suður-Afríka – Suður-Kórea (RÚV 2)