Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Lokadagur riðlakeppninnar og 32-liða úrslitin taka á sig mynd

Read Full Article →

Sex leikir eru á dagskrá heimsmeistaramótsins í fótbolta á þessum lokakeppnisdegi riðlakeppninnar. Kólumbía er sem stendur á toppi K-riðils með sex stig en Portúgalar fylgja á eftir með fjögur. Liðin mætast í kvöld þar sem toppsætið verður undir. Í sama riðli mætast Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Úsbekistan. Þar á Kongó fræðilegan möguleika á því að komast áfram sem þriðja sætis lið nái það þremur stigum í kvöld. Kemur fyrsta markið gegn Englendingum? Í L-riðli eru England og Gana með fjögur stig hvort. Englendingar mæta stigalausu liði Panama sem er jafnframt eina liðið sem ekki hefur skorað á mótinu hingað til. Þá mætast Króatía og Gana en Króatar eru með þrjú stig. Loks er það J-riðill. Þar eru Argentínumenn öruggir áfram og liðið mætir Jórdaníu sem er þegar úr leik. Alsír og Austurríki eigast við en bæði lið eru með þrjú stig. Dagskráin 21:00 Panama - England 21:00 Króatía - Gana 23:30 Kólumbía - Portúgal 23:30 Kongó - Úsbekistan 02:00 Jórdanía - Argentína 02:00 Alsír - Austurríki

Share this article