Fjórir leikir eru á dagskrá HM í fótbolta í kvöld og með þeim lýkur annarri umferð riðlakeppninnar. Portúgal og Úsbekistan ríða á vaðið kl. 17. Portúgal olli vonbrigðum í fyrstu umferð þegar liðið gerði aðeins 1-1 jafntefli við Kongó. Roberto Martínez og hans menn eru því undir pressu að sækja þrjú stig til Houston. Afar áhugaverður leikur hefst svo klukkan 20 þegar England og Gana eigast við. England byrjaði mótið af krafti með 4-2 sigri á Króatíu þar sem Harry Kane skoraði tvö mörk. Gana vann Panama 1-0 með sigurmarki á lokamínútunum og hefur því einnig þrjú stig. Panama og Króatía mætast svo kl. 23. Bæði lið eru án stiga eftir fyrstu umferð og því er mikið undir í Toronto. Panama tapaði naumlega fyrir Gana þrátt fyrir sterka varnarframmistöðu stóran hluta leiksins. Lokaleikur dagsins verður svo næturviðureign Kólumbíu og Kongó. Suður-Ameríkumennirnir hófu mótið með 3:1 sigri á Úsbekistan þar sem Luis Díaz fór fyrir liðinu með marki og stoðsendingu. Kongómenn komu hins vegar skemmtilega á óvart með jafnteflinu gegn Portúgal. Leikir dagsins 17:00 Portúgal – Úsbekistan (RÚV 2) 20:00 England – Gana (RÚV 2) 23:00 Panama – Króatía (RÚV) 02:00 Kólumbía – Kongó (RÚV)