Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skotar þurfa að þola langa bið eftir örlögum sínum

Read Full Article →

Brasilía vann Skotland 0-3 og þar með C-riðil á HM í fótbolta. Brasilía og Marokkó eru komin í 32-liða úrslit. En Skotar þurfa að bíða þangað til á sunnudaginn, því þá kemur í ljós hvort að liðið fari áfram með bestan árangur í þriðja sæti. Brasilía komst yfir eftir hrikaleg mistök McKenna í vörn Skota. Rayan truflaði han og boltinn barst til Vinicius, sem tók snertingu, fíflaði Gunn og lagði boltann í tómt markið. Bruno Guimaraes á hárfína sendingu beint á kollinn á Vinicius Jr. sem stangaði boltann inn rétt fyrir hálfleik. Cunha gerði út um leikinn með þriðja markinu. Bruno laumaði boltanum snyrtilega utanfótar beint fyrir fætur United mannsin sem skoraði af öryggi. Skotar þurfa að bíða í viku til að sjá hvort að þeir fari áfram sem eitt af 8 bestu liðunum með bestan árangur í þriðja sæti. Þrjú stig gætu dugað þeim þar, en þetta ræðst sennilega af markatölu. Svona eru 32-liða úrslitin eins og er, ef miðað er við stöðu liða úr B- og C-riðli: Holland - Marokkó Mexíkó - Skotland Brasilía - Japan Mörkin úr leiknum. Skotar máttu þola 0-3 tap gegn Brasilíu í C-riðli á HM í fótbolta. Þar með eru þeir í þriðja sæti riðilsins og þurfa að bíða lengi eftir niðurstöðu í sínum málum. Bestu liðin í 3. sæti eins og er Bosnía og Hersegóvína – 4 stig – mínus 1 í markatölu Svíþjóð – 3 stig – 0 í markatölu Króatía – 3 stig – mínus 1 í markatölu Alsír – 3 stig – mínus 2 í markatölu Paragvæ – 3 stig – mínus 2 í markatölu Skotland – 3 stig – mínus 3 í markatölu Grænhöfðaeyjar – 2 stig – 0 í markatölu Belgía – 2 stig – 0 í markatölu Tékkland – 1 stig – mínus 1 í markatölu Lýðstjórnarlýðveldið Kongó – 1 stig – mínus 1 í markatölu Ekvador – 1 stig – mínus 1 í markatölu Senegal – 0 stig – mínus 3 í markatölu Átta eftstu fara áfram.

Share this article