Það er nóg um að vera á HM í kvöld og í nótt. Fyrst er það stórslagur Frakklands og Senegal klukkan 19:00. Frakkar léku til úrslita á síðasta HM og eru sigurstranglegir í ár. Senegal varð Afríkumeistari en titillinn var dæmdur af þeim sökum þess að liðið gekk af velli í mótmælaskyni í úrslitaviðureigninni. Liðin leika í I-riðli ásamt Noregi og Írak sem mætast einmitt klukkan 22:00. Norska landsliðið mætir þá til leiks í fyrsta sinn á HM síðan 1998. Í nótt er svo komið að J-riðli. Fyrst mæta ríkjandi heimsmeistarar Argentínu Alsír. Svo er það leikur Austurríki og Jórdaníu klukkan 04:00. Dagskráin í dag: 18:30 Stofan (RÚV 2) 19:00 Frakkland - Senegal (RÚV 2) 21:05 HM kvöld (RÚV 2) 22:00 Írak - Noregur (RÚV 2) 01:00 Argentína - Alsír (RÚV) 04:00 Austurríki - Jórdanía (RÚV)