Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Markabarátta Mbappe og Haaland heldur áfram

Read Full Article →

Í dag eru þrír leikir á dagskrá í 32-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Fílabeinsströndin og Noregur mætast í fyrsta leiknum. Frakkar og Svíar mætast í kvöldleiknum og Mexíkó mætir Ekvador í næturleiknum. Messi er markahæstur á mótinu með sex mörk. Þar á eftir fylgja stjörnuframherjarnir Mbappe og Haaland með fjögur mörk hvor. Mbappé er hins vegar talinn í öðru sæti þar sem hann er með tvær stoðsendingar. Ousmane Dembele og Vinicius Junior eru báðir með tvö mörk. Norðmenn hafa tvisvar áður komist í 16-liða úrslit, síðast árið 1998 en fyrsta árið 1938. Fílabeinsströndin komst upp úr riðlakeppni í síðasta sinn og hefur nú þegar náð sögulegum árangri. Fílabeinsströndin var í 2. sæti í E-riðli og Noregur í 2. sæti í I-riðli. Frakkar unnu I-riðil en Svíar urðu í 3. sæti í F-riðli. Svíar fóru í 8-liða úrslit árið 2018 en voru ekki með á HM í Katar. Þar fóru Frakkar alla leið í úrslit en máttu þola tap. Heimamenn í Mexíkó unnu A-riðil og halda því áfram að leika á heimavelli. Ekvador var í 3. sæti í E-riðli. Dagskrá dagsins: 17:00 - Fílabeinsströndin - Noregur - RÚV 2 20:30 - Stofan - RÚV 2 21:00 - Frakkland - Svíþjóð RÚV 2 23:05 - HM kvöld RÚV 2 01:00 - Mexíkó - Ekvador- RÚV

Share this article