Í dag eru tveir risastórir leikir á dagskrá á HM karla í fótbolta og mikilvægur leikur hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Ísland leikur úrslitaleik um að komast áfram í næsta fasa undankeppni HM, en þangað hefur liðið aldrei komist. Sigurvegari leiksins fer áfram í sex liða milliriðil þar sem þrjú efstu liðin fara á HM. 16-liða úrslitin á HM halda áfram. Norðmenn mæta Brasilíu í fyrri leik dagsins klukkan 20:00 og heimamenn í Mexíkó leika gegn Englandi á hinum sögufræga Azteca velli. Dagskrá dagsins: 14:00 - Bretland - Ísland - Undankeppni HM karla í körfubolta - RÚV 20:00 Brasilía - Noregur - 16-liða úrslit HM karla í fótbolta - RÚV 0:00 - Mexíkó - England - 16-liða úrslit - HM karla í fótbolta - RÚV