Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Ísland mætir Litáen í undankeppni HM

Read Full Article →

Ísland mætir Litáen í fyrri leik liðanna af tveimur í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta í dag. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á RÚV 2. Leikirnir tveir eru í undankeppni HM 2027 og eru Bretland og Ítalía einnig í riðlinum. Öll liðin eru jöfn að stigum að tveimur umferðum loknum Ísland mætir svo í Litáen 2. mars ytra. Orri Gunnarsson sleit krossband á æfingu en enginn leikmaður hefur enn verið kallaður í hópinn í hans stað. Viðtöl við Craig Pedersen og Kristinn Pálsson Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Litáen í undankeppni HM 2027 í dag. Leikurinn hefst klukkan 19:30.Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Litáen í undankeppni HM 2027 í dag. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Bretland og Ítalía eru einnig í riðlinum og er Ísland sem stendur í 3. sæti eftir einn sigur og eitt tap. Öll fjögur liðin eru hnífjöfn með þrjú stig, en gefið er eitt stig fyrir að mæta til leiks og tvö stig fyrir að vinna leik. Svona er hópurinn Elvar Friðriksson - Anwil Wloclawek í Póllandi - 86 leikir Haukur Helgi Pálsson - Álftanes - 84 leikir Hilmar Smári Henningsson - Stjarnan - 30 leikir Jón Axel Guðmundsson - CB San Pablo Burgos á Spáni- 47 leikir Kári Jónsson - Valur - 45 leikir Kristinn Pálsson - General Contractor Jesi á Ítalíu - 47 leikir Orri Gunnarsson - Stjarnan - 23 leikir Ólafur Ólafsson - Grindavík - 52 leikir Styrmir Snær Þrastarson - CB Zamora á Spáni- 32 leikir Tryggvi Snær Hlinason - Bilbao Basket á Spáni – 81 leikur Veigar Páll Alexandersson - Njarðvík - Nýliði Þórir Guðmundur Þorbjarnarson - KR - 31 leikur Ægir Þór Steinarsson - Stjarnan - 103 leikir

Share this article