Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Ísland tekur á móti Ítalíu og Portúgal mætir Króatíu á HM

Read Full Article →

Íslenska karlalandsliðið í köfubolta mætir Ítalíu hér heima í dag og Bretlandi ytra á sunnudag í afar jöfnum riðli. Liðið er komið ansi nálægt því að komast í lokaumferð undankeppninnar. Ítalía hefur unnið þrjá leiki, Litháen og Ísland tvo hvort og Bretland einn. Þar sem þrjú lið komast áfram í næstu umferð, dugir Íslandi því sigur í öðrum hvorum leiknum til að komast áfram. Ísland hefur komist á þrjú af síðustu fjórum Evrópumótum en aldrei komist á Heimsmeistaramót. Staðan í riðlinum Ítalía - 7 stig Litáen - 6 stig Ísland - 6 stig Bretland - 5 stig Útsending frá leik Íslands og Ítalíu hefst klukkan 19:30 á RÚV. Portúgal og Króatía berjast um sæti í 16-liða úrslitum Þá eru þrír leikir á dagskrá 32-liða úrslita heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fyrst er það leikur Spánar og Austurríkis og þaðan taka Portúgal og Króatía við í spennandi viðureign. Loks er það leikur Sviss og Alsír. Dagskráin: 18:30 Stofan (RÚV 2) 19:00 Spánn - Austurríki (RÚV 2) 19:45 Ísland - Ítalía (RÚV) 21:05 HM kvöld (RÚV 2) 23:00 Portúgal - Króatía (RÚV) 03:00 Sviss - Alsír (RÚV)

Share this article