Íslenska kvennalandsliðið mun mæta Króatíu í fyrra einvíginu í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu á næsta ári. Leikið verður 7.-13. október, fyrst í Króatíu og svo á Íslandi. Króatía er í 63. sæti á heimslistanum, 46 sætum neðar en Ísland. Króatar spiluðu í C-deild og enduðu í öðru sæti riðilsins með jafn mörg stig og Kósóvó en verri markatölu. Sigurvegarinn mætir svo annað hvort Norður-Írlandi eða Portúgal í úrslitaeinvíginu sem verður 26. nóvember - 5. desember. Ef Ísland kemst í það verður seinni leikurinn aftur á heimavelli. Norður-Írland er í 50. sæti heimslistans, Portúgal töluvert ofar í 22. sæti. Heimsmeistaramótið verður í Brasilíu á næsta ári og gæti orðið fyrsta HM sem íslenska kvennalandsliðið kemst á. Fyrri leikir gegn þessum þjóðum Ísland hefur tvisvar mætt Króatíu, það var í undankeppni HM 2011. Ísland vann báða leikina 3-0. Síðast mætti liðið Norður-Írlandi í umspili Þjóðadeildarinnar í fyrra þar sem Ísland vann 0-2 og 3-0. Alls hafa liðin mæst sjö sinnum. Tíu sinnum hefur liðið mætt Portúgal, síðast einmitt í umspilinu fyrir HM 2023 þar sem Portúgal vann 4-1 í framlengdum leik.