Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gunnar Ingi og Andri ráðnir forstöðumenn hjá OK

Read Full Article →

Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason hafa verið ráðnir forstöðumenn hjá tæknifyrirtækinu OK. Gunnar Ingi hefur tekið við starfi forstöðumanns innviðasölu og Andri hefur tekið við starfi forstöðumanns netlausna. Í tilkynningu frá OK segir að Gunnar Ingi búi yfir víðtækri reynslu af sölu- og markaðsmálum á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Hann kemur til félagsins frá alþjóðlega dreifingaraðilanum Exclusive Networks þar sem hann starfaði sem sölustjóri á Íslandi. Áður gegndi hann stöðu sölu- og markaðsstjóra Premis sem sameinaðist Opnum Kerfum undir merkjum OK. Gunnar Ingi hefur einnig víðtæka stjórnunarreynslu, meðal annars sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar og áður framkvæmdastjóri Heimkaupa. Andri Tryggvason býr yfir áratugareynslu af net- og tæknilausnum, bæði sem sérfræðingur og stjórnandi. Hann kemur til OK frá Advania þar sem hann gegndi meðal annars stöðu deildarstjóra netrekstrar. Þar að auki hefur Andri víðtæka reynslu af netkerfum og netlausnum, meðal annars hjá Sensa þar sem hann leiddi teymi netkerfisfræðinga. „Við erum afar ánægð að fá þá Gunnar Inga og Andra til liðs við OK. Þeir búa yfir mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast fyrirtækinu vel. Með ráðningu þeirra styrkjum við enn frekar þjónustu okkar við viðskiptavini og sérfræðiþekkingu OK á sínum sviðum,“ segir Gunnar Zoega, forstjóri OK.

Share this article