Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gunnar og Kristín til hluthafahóp Lotu

Read Full Article →

Gunnar Sigvaldason og Kristín Ósk Þórðardóttir hafa gengið til liðs við hluthafahóp verkfræði- og ráðgjafafyrirtækisins Lotu. Þau hafa bæði starfað hjá félaginu um árabil og gegnt miklum hlutverkum í uppbyggingu þess og þróun. Samkvæmt Lotu er breytingin liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og styrkir grunn fyrirtækisins fyrir frekari vöxt og sókn á komandi árum. Gunnar er raforkuverkfræðingur með meistaragráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur komið að fjölbreyttum og umfangsmiklum verkefnum á sviði raforkukerfa, bæði í há- og lágspennu, og sérhæft sig í jarðskauta- og eldingavörnum. Sjá einnig Tveir nýir sérfræðingar til liðs við Lotu Þá hefur hann sinnt verkefnastjórnun og ábyrgðarhlutverkum í lykilverkefnum hjá Lotu, auk þess að vera virkur í fagstarfi innan Verkfræðingafélags Íslands. Kristín er rafmagnsverkfræðingur og verkefnastjóri með víðtæka reynslu af hönnun rafkerfa, lýsingarhönnun og stjórnun umfangsmikilla verkefna, þar á meðal stórra opinberra framkvæmda. Hún hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þróun verkefna hjá félaginu og býr yfir alþjóðlegum vottunum á sviði verkefnastjórnunar og umhverfisvottunar. „Það er mikið fagnaðarefni fyrir Lotu að fá Gunnar og Kristínu inn í hluthafahóp Lotu. Þau hafa bæði spilað mikilvægt hlutverk í þróun félagsins um árabil og viðbót þeirra í hluthafahópinn er liður í að byggja félagið áfram upp með öflugu fólki úr eigin röðum,“ segir Trausti Björgvinsson, framkvæmdastjóri Lotu.

Share this article