Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrjú ný ráðin til Optise

Read Full Article →

Hugbúnaðarfyrirtækið Optise hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn í teymið en þeir eru Arnór Eyvar Ólafsson, Anna Berglind Jónsdóttir og Hannes Stefánsson. Í tilkynningu segir að þau komi öll með djúpa reynslu úr íslenska og alþjóðlega tækniheiminum. Ráðningarnar koma í kjölfar mikilla umsvifa fyrir Optise en fyrirtækið varð meðal annars fyrsta íslenska fyrirtækið til að komast í fimm liða úrslit á TechArena, stærstu tækniráðstefnu Norðurlandanna. Arnór Eyvar Ólafsson kemur til liðs við Optise sem gervigreindarsérfræðingur en hann kemur frá Lagaviti þar sem hann þróaði gervigreindarlausn fyrir lögfræðinga. Áður var hann hugbúnaðarverkfræðingur hjá Lucinity í fimm ár en Arnór mun leiða þróun gervigreindarvélar Optise. Sjá einnig Íslendingar komust í fimm liða úrslit í fyrsta sinn Anna Berglind Jónsdóttir tekur við sem yfirframendaforritari. Hún var áður tækniteymisstjóri hjá Öldu og hefur byggt upp framendalausnir hjá Lucinity og Genuity Science. Anna mun sjá um að leiða notendaupplifun og útlit Optise. Hannes Stefánsson kemur til Optise frá Lucinity þar sem hann var yfirmaður viðskiptalausna og gæðaeftirlits. Áður starfaði hann hjá Símanum sem þjálfunar- og þjónustusérfræðingur en hjá Optise mun hann leiða þjónustu og innleiðingu. „Vefsíðan á að hjálpa fyrirtækjum að selja, ekki bara líta vel út. Til þess þarf hún að læra af gögnum og taka stöðugum framförum. Optise gerir það sjálfvirkt fyrir B2B fyrirtæki, og við erum heppin að fá Arnór, Önnu og Hannes í teymið til að halda áfram að gera Optise enn betra,“ segir Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Optise.

Share this article