Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Magnús og Nan­cy til liðs við Ís­lenska fjár­festingu

Read Full Article →

Íslensk fjárfesting hefur ráðið Magnús Ágúst Skúlason í nýtt starf forstöðumanns upplýsingatækni og Nancy Lyn Jóhannsdóttur sem forstöðumann reikningshalds. Þau hafa þegar hafið störf. „Það er mikill fengur fyrir Íslenska fjárfestingu að fá Magnús og Nancy til liðs við okkur. Ráðningarnar styrkja mikilvæga innviði samstæðunnar á sama tíma og félögin eru í áframhaldandi vexti,“ segir Þórir Kjartansson , framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar. Íslensk fjárfesting er fjárfestingafélag í eigu Þóris og Arnars Þórissonar. Íslensk fjárfesting er eigandi Sóltúns, Kilroy, Íslenskra fasteigna og Útilífs. Nýtt upplýsingatæknisvið Magnús Ágúst Skúlason hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýsingatækni hjá Íslenskri fjárfestingu. Um er að ræða nýtt starf innan félagsins og mun Magnús leiða nýtt svið upplýsingatækni. Hann mun bera ábyrgð á mótun og uppbyggingu upplýsingatækni innan samstæðunnar, meðal annars með áherslu á gagnainnviði, rekstur kerfa og hagnýtingu stafrænnar tækni og gervigreindar þvert á félög samstæðunnar. Magnús hefur reynslu af upplýsingatækni, kerfisrekstri, hugbúnaðarþróun og verkefnastjórnun. Hann kemur til Íslenskrar fjárfestingar frá Dohop, en þar starfaði hann sem tæknileiðtogi í hugbúnaðarþróun. Magnús er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, meistaragráðu í upplýsinga- og samskiptatækni frá frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) og B.Sc gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. „Það er gríðarlega spennandi að ganga til liðs við Íslenska fjárfestingu og fá að taka þátt í að móta upplýsingatæknisvið félagsins til framtíðar. Ég sé mikil tækifæri í því að byggja upp öfluga gagnainnviði og nýta stafræna tækni og gervigreind betur þvert á félög samstæðunnar,“ segir Magnús . Nýr forstöðumaður reikningshalds Nancy Lyn Jóhannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður reikningshalds hjá Íslenskri fjárfestingu og dótturfélögum. Í starfinu mun Nancy bera ábyrgð á daglegum rekstri reikningshalds og uppgjörum Íslenskrar fjárfestingar og dótturfélaga félagsins. Nancy, sem býr yfir áralangri reynslu af reikningshaldi, kemur til Íslenskrar fjárfestingar frá Festi, en þar starfaði hún í rúmlega fimm ár sem sviðstjóri reikningsskila og stjórnendaupplýsinga fyrir Krónuna og Vínportið. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. „Það er ánægjulegt að ganga til liðs við Íslenska fjárfestingu á þessum tímapunkti og fá að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Íslensk fjárfesting er með fjölbreytt eignasafn og öflug félög á ólíkum sviðum. Verkefnin eru þannig fjölbreytt og spennandi og ég hlakka til að nýta mína reynslu í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir Nancy .

Share this article