Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Magnús ráðinn fjármálastjóri Daga

Read Full Article →

Magnús Jón Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Daga og hefur þegar hafið störf. Í tilkynningu segir að samhliða ráðningunni muni hann jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Dagar hf. er 700 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ræstingum, vinnustaðalausnum og fasteignaumsjón fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land. Magnús býr yfir mikilli reynslu á sviði fjármála og rekstrarstjórnunar og kemur til Daga frá Icelandair, þar sem hann starfaði í tíu ár. Þar gegndi hann síðast lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni rekstrar, en áður sem sérfræðingur á sviði fjármála og rekstraráætlunargerðar. „Ráðning Magnúsar er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Með reynslu sinni og þekkingu mun hann styðja við aukna skilvirkni, styrkja fjármálastýringu og stuðla að frekari þróun á stafrænu og tæknilegu umhverfi Daga. Magnús hefur víðtæka þekkingu á fjármálastjórnun, greiningu og umbótaverkefnum sem mun nýtast vel í áframhaldandi vexti félagsins,“ segir Brynhildur Guðmundsdóttir, forstjóri Daga. Magnús er með MBA-gráðu frá Schiller International University í Flórída og er jafnframt viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Share this article