Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kastaðist í kekki milli Dags og Sigmundar Davíðs vegna MAGA

Read Full Article →

Eftir fremur rólegar umræður framan af degi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sló í brýnu milli Dags B. Eggertssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, svo um munaði, þegar sá fyrrnefndi skoraði á Miðflokkinn að gera grein fyrir tengslum flokksins við MAGA-hreyfinguna. Lætin hófust í andsvörum við ræðu Dags um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð sakaði Dag um lygar í umræðunni og spurði hann hvenær hann ætlaði að koma sér inn í raunheima. Dagur svaraði spurningu Sigmundar Davíðs ekki beint en fór svo að tala um meint tengsl Miðflokksins við MAGA-hreyfinguna og sagði að flokkurinn þyrfti að gera hreint fyrir sínum dyrum í því máli. Heimildin hefur að undanförnu skrifað greinar um tengsl ákveðinna Miðflokksmanna við fólk tengt MAGA-hreyfingunni og þá fullyrti norski miðillinn Altinget.no að ráðgjafi Nigels Farage, formanns Reform í Bretlandi, hafi í tvígang komið hingað til lands og fundað með forsvarsmönnum Miðflokksins. Óhætt er að segja að Sigmundur Davíð hafi tekið þessi ummæli Dags óstinnt upp og sagði hann Dag gaslýsa bæði almenning á Íslandi og Alþingi með því að spinna furðuþráð sem ekkert væri hæft í. Dagur svaraði á móti að hann hafi ekki fullyrt eitt né neitt, heldur einungis gefið Miðflokknum tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum, sem hann hafi kosið að gera ekki. „Það hefur raunar verið bannað í íslenskum lögum frá 6. júní 1978 að þiggja fé eða aðra hagsmuni frá erlendum aðilum. Þess vegna er þetta mikilvægt mál, sérstaklega núna þegar við lifum í heimi þar sem erlendir aðilar eru að hafa áhrif á kosningar um allan heim. Ég er ekki að fullyrða neitt en það er eðlilegt að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessu.“ Sigmundur Davíð kvaddi sér hljóðs undir liðnum fundarstjórn forseta. „Ég vil hvetja forseta til að hafa stjórn á þingfundi að því marki að menn nýti ekki fyrst og fremst tækifæri sitt hér í pontu til að dreifa óhróðri og lygum um aðra háttvirta alþingismenn. Slíkt er ekki til þess fallið að stuðla að góðri umræðu hér um Evrópumálin eða nokkuð annað.“ Fleiri þingmenn blönduðu sér í málið og kepptust stjórnarandstæðingar um að fordæma ummæli Dags en Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, kom Degi til varnar.

Share this article