Innlent | mbl | 10.3.2026 | 18:55 Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla Dagur spurði Sigmund út í meint tengsl Miðflokksins við MAGA-hreyfingu Bandaríkjaforseta og heimsókn ráðgjafa Nigels Farage til landsins. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Heiða Kristín ráðleggur Þorgerði fram að atkvæðagreiðslu Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna » Fleiri tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Stórri stöð lokað: Vara við hörmulegum afleiðingum Vill Kúbu með góðu eða illu Gengi hlutabréfa í Evrópu hækkar eftir ummælin Yfirlýsing Trumps hefur einnig áhrif á gasverð Tekur Rubio við stjórnartaumum Hvíta hússins? » Fleiri tengdar fréttir Snörp orðaskipti urðu í þingsal í dag þegar Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bað Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, um að gera grein fyrir tengslum flokks síns við MAGA-hreyfingu Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna. Í svörum sínum sagði Sigmundur Davíð sagði meðal annars að Dagur væri að dreifa óhróðri og lygum og að enginn vildi leika við hann. Nú fer fram á Alþingi umræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í ræðu sinni um þingsályktunartillöguna ræddi Dagur meðal annars breytta stöðu í heimsmálum síðustu misseri en undir lok hennar vék hann að meintum tengslum Miðflokksins við MAGA-hreyfinguna sem hann sagðist hafa lesið um í erlendum miðlum. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eyþór Heimsóknir ráðgjafa Farage til landsins Þar vísar Dagur sennilega í grein sem birtist á norska miðlinum Altinget í gær en í henni kemur fram að bandarísk yfirvöld vilji halda Íslandi utan Evrópusambandsins og að bandarískur ráðgjafi Nigels Farage, formanns breska hægriflokksins Reform, hafi komið tvisvar hingað til lands undanfarið. Í þeim heimsóknum á hann að hafa rætt við stjórnmálamenn í bæði Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. „Talandi um að gera hreint fyrir sínum dyrum þá væri nú ágætt ef Miðflokkurinn myndi gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart því að vera kominn á spenann hjá MAGA-hreyfingunni, að vera komin í það að hafa áhrif hér með ráðgjafa Nigel Farage í Bretlandi, á íslensk innanríkismál,“ sagði Dagur í ræðu sinni en Sigmundur Davíð var ekki staddur í þingsal á þeim tímapunkti. „Ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, væri hérna myndi hann líklega segja að mér fannst mjög óþægilegt að lesa þetta í erlendum fjölmiðlum. Ég ætla ekki að fullyrða neitt í þessu. Ég er bara að biðja Miðflokkinn að gera hreint fyrir sínum dyrum,“ sagði Dagur. Þar vísaði hann sennilega í orð Sigmundar Davíðs í fjölmiðlum síðustu daga þar sem hann hefur sett út á að hafa fyrst lesið um að til stæði að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst í erlendum miðlum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas Langar ekki að leika við Dag Rúmum stundarfjórðungi síðar var Sigmundur mættur í þingsal. Hann fór þá upp í pontu til að svara Degi og vændi hann um lygar og veruleikafirringu. „Okkur langar ekki heldur að leika við hæstvirtan þingmann en við neyðumst til þess og vildum helst að það gerðist í raunheimum en hæstvirtur þingmaður býr í annarri veröld,“ sagði Sigmundur í upphafi andsvars síns. „Kannski varð sú veröld til í Árbænum þegar enginn vildi leika við hann, hann þurfti að búa sér til eigin heim og það birtist núna hér á Alþingi það sem hann talar út frá eigin veruleika, algjörlega án tengsla við raunheiminn. En hann bætir líka við lygum. Lygar, hvar sem hann finnur þær, nýtast honum til að réttlæta heimsmynd sína.“ Sakaði Dag áfram um lygar Greinilegt var að Degi fannst þetta svar formanns Miðflokksins ekki fullnægjandi en þegar hann sneri aftur upp í pontu sagði hann að Sigmundi hefði greinilega sárnað þegar hann bað hann um að gera hreint fyrir sínum dyrum og að það væri eðlilegt. „Miðflokkurinn þarf auðvitað að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi tengsl við MAGA-hreyfinguna sem við lásum um í erlendum fjölmiðlum, sem var óþægilegt, eins og formaður Miðflokksins orðaði það, nánar tiltekið í norskum fjölmiðlum, sem höfðu það eftir bæði heimildum í Bretlandi og í Bandaríkjunum og tilgreindu fundi bæði á þessu ári og því síðasta sem ég held að verði að skýra frá,“ sagði Dagur. Þá sneri Sigmundur aftur og ítrekaði að Dagur færi með lygar. „Eina sem hann hefur fram að færa sem viðbrögð eru meiri lygar sem hann hefur frá einhverjum vinum sínum sem spunnu furðuþráð sem ekkert er hæft í,“ sagði Sigmundur. „En það hentar Degi B. Eggertssyni. Því fjær sem eitthvað er raunveruleikanum og sannleikanum þeim mun fegnari er hann að sjá það.“ Teygði sig yfir í næsta lið Þessi umræða hélt áfram á svipuðum nótum í nokkurn tíma og teygði sig yfir í næsta dagskrárlið þingsins, umræðu um fundarstjórn forseta. Dagur ítrekaði áskorun sína til Sigmundar um að gera hreint fyrir sínum dyrum og benti á að samkvæmt íslenskum lögum væri bannað að þiggja fé frá erlendum hagsmunaöflum. Sigmundur Davíð hvatti þá þingforseta til að hafa stjórn á fundarhöldum „að því marki að menn nýti ekki fyrst og fremst tækifæri sitt hér í pontu til að dreifa óhróðri og lygum um aðra háttvirta alþingismenn“. Tengdar fréttir Ísland og ESB Heiða Kristín ráðleggur Þorgerði fram að atkvæðagreiðslu Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna » Fleiri tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Stórri stöð lokað: Vara við hörmulegum afleiðingum Vill Kúbu með góðu eða illu Gengi hlutabréfa í Evrópu hækkar eftir ummælin Yfirlýsing Trumps hefur einnig áhrif á gasverð Tekur Rubio við stjórnartaumum Hvíta hússins? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 140 bandarískir hermenn særðir Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Galatasaray - Liverpool, staðan er 1:0 „Ég fór svöng á matarmarkaðinn og þetta gerðist“ Atli skoraði fimm gegn Valsmönnum Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólastjórinn hættir alfarið „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Telja sig vita orsök stórbrunans Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Drumbarnir frá NATO Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » 140 bandarískir hermenn særðir Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Galatasaray - Liverpool, staðan er 1:0 „Ég fór svöng á matarmarkaðinn og þetta gerðist“ Atli skoraði fimm gegn Valsmönnum Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólastjórinn hættir alfarið „Helmingslíkur á gosi“ Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Drumbarnir frá NATO Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar