Mikill kraftur er hlaupinn í umræðuna fyrir kosningarnar um áframhald aðlögunarviðræða Íslands við Evrópusambandið í ágúst. Það eru helst þeir sem eru Viðreisnarmegin í lífinu sem eru hvað mest áberandi í umræðunni auk Dags B. Eggertssonar sem fer mikinn þessa dagana. Ljóst er að hann horfði um tíma til hins auða stól varaformanns Samfylkingarinnar, en þátttakendur í könnun Maskínu sem var gerð nýlega voru spurðir hversu vel eða illa þeim litist á að Dagur yrði næsti varaformaður flokksins. Hrafnarnir vita ekki hvort Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var í úrtakinu. Annars fylgdust hrafnarnir með Silfrinu á mánudag, en þar var hart tekist á um Evrópumálin og þjóðaratkvæðisgreiðsluna. Þar sakaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Dag um að „segja bara eitthvað“ til að mæla fyrir aðild. Hrafnarnir hafa ákveðna samúð með því sjónarmiði Sigmundar, enda hafði Dagur látið þau orð falla að Kerecis hefði flutt til Danmörku vegna hárra stýrivaxta og að íslensk heimili myndu græða þúsund milljarða á tíu árum með aðild að ESB. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 3. júní 2026.