Magnús Jón Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Daga en hann hóf störf hjá fyrirtækinu í október í fyrra. Samhliða ráðningunni tók hann jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Dagar er 700 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ræstingum, vinnustaðalausnum og fasteignaumsjón fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land. Magnús býr yfir mikilli reynslu á sviði fjármála og rekstrarstjórnar en hann kemur til félagsins frá Icelandair þar sem hann starfaði í tíu ár. Þar gegndi hann lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni rekstrar. Viðskipti hafa alltaf spilað stóran þátt í lífi Magnúsar en á yngri árum starfaði pabbi hans hjá Sparisjóðnum í Keflavík og í Hafnarfirði og fékk hann oft að fara með föður sínum á skrifstofuna um helgar. Nánar er fjallað um Magnús í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .