Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gunnar Ingi leiðir þjónustusvið Daga

Read Full Article →

Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri þjónustu hjá Dögum. Hann hóf störf í lok síðasta árs og hefur þegar komið að mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustusviðs félagsins. Hann býr að meira en 20 ára reynslu af þróun og innleiðingu stafrænna lausna á sviði þjónustu og tækni, meðal annars hjá Stafrænu Íslandi og Origo. Þá hefur hann starfað í rúman áratug í ferðaþjónustu og hefur víðtæka þekkingu á þjónustustjórnun, rekstri og umbótaverkefnum. Gunnar er reyndur stjórnandi og fyrirlesari sem leggur áherslu á sterka liðsheild, markvissa þjónustustjórnun og stöðugar umbætur. „Við erum afar ánægð með að hafa fengið Gunnar til liðs við okkur. Hann kemur með dýrmæta reynslu, skýra sýn og kraft til að efla þjónustu Daga enn frekar. Þekking hans á nýtingu tækni til að auka skilvirkni og styrkja upplifun viðskiptavina mun skipta okkur miklu máli á næstu misserum,“ segir Brynhildur Guðmundsdóttir, forstjóri Daga. Dagar hf. er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ræstingum, vinnustaðalausnum og fasteignaumsjón fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land.

Share this article