Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gunnar Egill stýrir Eignaumsjón

Read Full Article →

Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Hann hefur starfað á dagvörumarkaðnum síðustu 23 árin, síðast sem forstjóri Samkaupa. Gunnar Egill kemur til starfa í júní þegar Daníel Árnason, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Eignaumsjónar síðustu tvo áratugina, lætur af störfum. Daníel mun koma áfram að starfsemi félagsins sem stjórnarmaður. Sjá einnig Hættir sem framkvæmdastjóri Eignaumsjónar Eignaumsjón sérhæfir sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og býr yfir þekkingu og reynslu í rekstri fjöleignarhúsa eftir rúmlega aldarfjórðungs starfsemi. Eignaumsjón hefur umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 hús- og rekstrarfélaga með hátt í 32.000 íbúðum/eignarhlutum. Starfsmenn félagsins eru 65 talsins. „Ég er spenntur að leiða Eignaumsjón áfram veginn,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson , verðandi framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. „Félagið er fjárhagslega sterkt, það býr yfir reynslumiklu starfsfólki og ég hlakka til að kynnast því öfluga fólki sem þar starfar. Innviðir eru sömuleiðis traustir og ég sé fjölmörg tækifæri fyrir félagið til að sækja fram.“ „Við bjóðum Gunnar Egil velkominn til starfa og hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu Eignaumsjónar,“ segir Guðjón Ármann Jónsson , stjórnarformaður Eignaumsjónar.

Share this article