Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Maður margra áhugamála

Read Full Article →

Í lok síðasta mánaðar var Gunnar Egill Sigurðsson var ráðinn framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Hann tók við starfinu fyrir tveimur vikum af Daníel Árnasyni sem gegndi stöðu framkvæmdastjóra síðustu tvo áratugina. Hann kemur til félagsins af dagvörumarkaði þar sem hann starfaði síðast sem forstjóri Samkaupa. Gunnar segir dagvörumarkaðinn vera skemmtilegan og líflegan geira enda hafi allir skoðun á þeim markaði hvort sem um er að ræða vöruframboð, gæði, verðlag eða upplifun. Hann bætir við að það hefði verið gott að kynnast félagi eins og Eignaumsjón fyrr. „Það var margt sem við hjá Samkaupum vorum að sjá um sjálf, sem sérhæft félag eins og Eignaumsjón hefði getað hjálpað okkur með. Eignaumsjón hefur starfað lengi við fasteignaþjónustu á sviði íbúðahúsnæðis en við sjáum líka mörg þjónustutækifæri við atvinnuhúsnæði.“ Nánar er fjallað um Gunnar í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article