Innlent | Morgunblaðið | 28.6.2026 | 11:09 „Grínast oft með að ég fái borgað fyrir að vera kvíðinn“ Ingimar við störf í Kaliforníu fyrr á árinu. Ljósmynd/Ingimar Eydal Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Ingimar Eydal Davíðsson hefur alltaf verið heillaður af sjónvarpsútsendingum. Í gegnum árin hefur hann komið að útsendingum stórviðburða úti um allan heim, þar á meðal má nefna Meistaradeildarleiki í Evrópu, tónleika fyrir Disney og uppistönd fyrir Netflix. Hann er í Bandaríkjunum þessa dagana að vinna í útsendingum frá HM. „Starf mitt, hvort sem það heitir tæknistjóri eða tæknilegur verkefnastjóri, er fyrst og fremst að sjá til þess að allt gangi smurt fyrir sig frá tæknilegu sjónarhorni,“ segir Ingimar í samtali við Morgunblaðið. Það mætti segja að Ingimar hafi alltaf stefnt á þessar slóðir. „Ég hóf störf sem verktaki hjá RÚV og Stöð 2 sálugri rétt upp úr tvítugu og fór svo til Bretlands í meistaranám. Þar vann ég við útsendingar á enska boltanum og Meistaradeildarleikjum og í gegnum þá vinnu kynntist ég fólki sem kom mér inn í þessi stóru verkefni. Síðar bjó ég í Bandaríkjunum og hef starfað þar sem tæknistjóri og tæknilegur verkefnastjóri í alls konar verkefnum. Ég flutti aftur heim til Íslands árið 2023 og rek nú fyrirtækið Castor Miðlun, sem bæði framleiðir og þjónustar alls kyns verkefni.“ Sífellt að hugsa Hann segir að beinar útsendingar séu það skemmtilegasta og ógnvænlegasta sem þau takist á við í sjónvarpsgeiranum og ferlið hefjist oft mörgum mánuðum fyrir útsendingu. „Mitt hlutverk er að samræma sýn útsendingarstjórans og framleiðendanna við raunveruleikann og tryggja að tæknileg smáatriði þvælist ekki fyrir. Í þessu felst að finna út úr því hversu margar myndavélar, hljóðnema og kapla þarf, hvernig útsendingin kemst alla leið á áfangastað og hvort panta þarf ljósleiðaratengingar eða gervihnattatíma, o.s.frv.“ Ingimar telur það kost í starfi sínu að ofhugsa. „Ég grínast oft með að ég fái borgað fyrir að vera kvíðinn en í þessu starfi er það kostur að vera sífellt að hugsa um það sem getur klikkað.“ Íslendingar eru vanir því að rekast á „afsakið hlé“-skilti í sjónvarpi en þegar kemur að verkefnum eins og HM segir Ingimar að það sé alls ekki í boði. „Í svona stærri verkefnum er til dæmis ekki hægt að treysta á venjulegt rafmagn, það verður að vera okkar eigin rafstöð og batterí sem halda helstu tækjum gangandi ef rafstöðin slær út.“ Hann segir að tæknin hafi þróast hratt. „Þegar ég starfaði við útsendingar á enska boltanum í Bretlandi fyrir tíu árum var þegar verið að senda út í 4K. Síðan þá hefur HDR-tækni, sem býður upp á meiri litadýpt og betri birtuskil, orðið sífellt algengari, meðal annars í útsendingum frá HM.“ Fylgist lítið með fótbolta Það furðulega við þetta allt er að Ingimar fylgist lítið sem ekkert með fótbolta og hefur takmarkaðan áhuga á íþróttinni, en hefur þó valið sér lið á HM til að halda með. „Ég legg það í vana minn að halda með þeim sem ólíklegri þykja til sigurs. Það hefur verið gaman að fylgjast með t.d. Curacao. Ætli maður verði svo ekki líka að styðja Norðmenn, sem virðast ætla að ná langt í ár.“ Er þetta stærsta sjónvarpsverkefni sem þú hefur unnið að? „Ætli það sé ekki óhjákvæmilegt. Ég hef heyrt því fleygt að þetta sé stærsta sjónvarpsverkefni sögunnar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Grínast oft með að ég fái borgað fyrir að vera kvíðinn“ Messi heldur áfram að slá met Breytingar á „skókassaíbúðum“ skilja íbúa í óvissu Þorskverð 40% hærra „Ég hef alltaf átt það til að mynda tilfinningaleg tengsl við föt og hluti“ Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Breytingarnar of hraðar og aggressívar Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Banna viðtöl og myndbandsupptökur Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Flugeldar í Safamýri um miðnætti Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Regnjakki líklega besta flíkin í dag Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » „Grínast oft með að ég fái borgað fyrir að vera kvíðinn“ Messi heldur áfram að slá met Breytingar á „skókassaíbúðum“ skilja íbúa í óvissu Þorskverð 40% hærra „Ég hef alltaf átt það til að mynda tilfinningaleg tengsl við föt og hluti“ Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Nafnaleki augljós öryggisbrestur Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Banna viðtöl og myndbandsupptökur Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Flugeldar í Safamýri um miðnætti Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Regnjakki líklega besta flíkin í dag Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku