Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Feðgar greindust báðir með hvítblæði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2026 | 13:06 Feðgar greindust báðir með hvítblæði Feðgarnir Ingimar Guðmundsson og Logi Ingimarsson í sumarblíðunni í Svarfaðardal á dögunum. Þeir leggjast saman á árarnar í ágúst. Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Sami vágesturinn, hvítblæði, bankaði upp á hjá feðgunum Ingimari Guðmundssyni og Loga Ingimarssyni þótt sjúkdómurinn hafi ekki lagst á þá með sama hætti. Þeir feðgar eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið í næsta mánuði og safna um leið fé fyrir Kraft (stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur). „Ég hef taugar til félagsins eftir veikindaferlið hjá mér því ég ákvað að stíga skrefið og vera eins konar andlit í auglýsingaherferðinni Lífið er núna ,“ segir Logi sem greindist með bráðahvítblæði fyrir tæpu ári, einungis 34 ára gamall. „Það var mikið áfall fyrir alla og ég fór samdægurs á spítala. Á vegum Krafts er strákahópur sem hittist mánaðarlega. Þar finnur maður jafningjastuðning með því að gera eitthvað saman og spjalla en það er bara eitt dæmið um það sem Kraftur býður upp á.“ Ingimar greindist ári á undan syninum með langvinnt hvítblæði. Við því er hægt að gefa lyf til að halda krabbameininu í skefjum þótt hann sé undir stöðugu eftirliti. Logi fór í krefjandi meðferð, eins og bráðahvítblæðið kallar á, sem gaf góða raun og þurfti ekki á beinmergsskiptum að halda. „Ég er í sjúkdómshléi eins og þetta kallast. Ég er ekki læknaður og ekki er hægt að halda því fram að svo stöddu. Ef sjúkdómurinn tekur sig ekki upp á næstu fimm árum þá er litið þannig á að ég sé læknaður.“ Logi er vanur götuhlaupum og hefur oft hlaupið 21 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu en þá á öðrum forsendum en nú. „Við munum hlaupa 10 kílómetra en ég er þakklátur fyrir að geta yfirhöfuð hlaupið. Síðasta æfing sem ég tók var einmitt um 10 kílómetrar. Ég er með ágætis grunnþjálfun og það hjálpaði einnig þegar ég fór í meðferðina. Ég hljóp mikið áður en ég veiktist og fallið er mikið varðandi hlaupagetuna. Ég hef ekki stjórn á því og verð að gangast við þessum nýja raunveruleika þótt ég sé ekki endilega sáttur við það. Þegar ég var í endurhæfingunni í janúar fannst mér hún ganga svo vel að ég hélt að ég gæti hlaupið 42 kílómetra. Hugurinn var kominn þangað en þegar á leið kom í ljós að það var ekki raunhæft,“ segir Logi og hann fór þess á leit við föður sinn að þeir myndu leggjast saman á árarnar fyrir gott málefni. „Mér datt í hug að heyra í pabba varðandi maraþonið og kanna hvort hann vildi hlaupa með mér. Ég hugsaði með mér að það væri táknrænt. Hann er að hreyfa sig og reynir eins og hann getur að halda sér í formi. Hugmyndin um að styrkja Kraft kom frá mér þar sem ég gekk í gegnum þetta sem ungur einstaklingur. Fleiri úr fjölskyldunni eru auk þess að bætast í hópinn til að sýna okkur stuðning í hlaupinu. Systir mín og bróðir pabba munu til að mynda reima á sig hlaupaskóna.“ Leyfðu fólki að hjálpa Logi bendir á að enginn geti komist einn í gegnum glímu við krabbamein. Sá sem veikist þurfi ávallt að reiða sig á stuðning í slíkum aðstæðum og sjálfur á Logi eiginkonu og tvö börn. „Það getur enginn farið einn í gegnum krabbameinsmeðferð. Maður þarf alltaf að reiða sig á stuðning einhvers staðar frá og maður leitar í stuðning frá öðrum. Maður getur ekki gert þetta einn sama hversu þrjóskur maður er og þver. Við karlmenn eigum það til að reyna að fara í gegnum mótbyr á hnefanum. Þegar á hólminn er komið er það bara ekki hægt og þú verður að leyfa fólki að hjálpa þér. Þegar maður þiggur hjálpina verður allt miklu auðveldara. Ég er ekki viss um að allir nýti hjálpina sem er í boði hjá Krafti, hvort sem það eru þeir sem veikjast eða aðstandendurnir. Álagið á þá er einnig mikið þegar fjölskyldumeðlimur fær krabbamein og dettur út úr heimilislífinu. Erfiðast í þessu öllu saman var að geta ekki verið til staðar fyrir dætur mínar. Þá er gott að hafa stuðningsnet frá fjölskyldu eða vinum en einnig frá félagi eins og Krafti sem grípur þig og aðstoðar við ýmsa praktíska hluti,“ segir Logi Ingimarsson. Hægt er að heita á Loga á slóðinni: rmi.is/hlaupastyrkur Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Feðgar greindust báðir með hvítblæði Trump hrósaði hetju Spánar Dísudraumur er drottning hverrar veislu Akureyskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er bara algjört hrun“ Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Ekki innstæða fyrir launahækkunum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum „Það er bara algjört hrun“ Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Beinbrotnaði við fallið af svölunum Þegar Ísland sótti ekki um Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Feðgar greindust báðir með hvítblæði Trump hrósaði hetju Spánar Dísudraumur er drottning hverrar veislu Akureyskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum „Það er bara algjört hrun“ Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Beinbrotnaði við fallið af svölunum Þegar Ísland sótti ekki um Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article