Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Guðmundur Ingi hættir sem varaformaður Vinstri grænna

Read Full Article →

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, ætlar ekki að gefa kost á sér til forystu á landsþingi flokksins í byrjun næsta mánaðar. Þessu greindi hann frá á Facebook-síðu sinni. Guðmundur Ingi var ráðherra í sjö ár, fyrst utan þings og síðan samhliða þingmennsku. Hann féll af þingi í síðustu kosningum. Hann hefur verið varaformaður flokksins frá 2019 fyrir utan skamman tíma þegar hann var formaður eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér til að fara í forsetaframboð. „Ég tel að Vinstri græn geti náð vopnum sínum aftur og orðið leiðandi á vinstri væng stjórnmálanna, í umhverfis- og náttúruverndarmálum og í baráttunni fyrir jöfnuði, mannréttindum og friði,“ segir Guðmundur Ingi. „Ég mun leggja mitt að mörkum til uppbyggingar hreyfingarinnar okkar, en ekki sem forystumaður hennar. Ég þakka öllum þeim sem hafa hvatt mig til að bjóða mig fram til forystu nú sem fyrr og útiloka ekki að gefa kost á mér í næstu alþingiskosningum.“

Share this article