Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HM-vaktin: Bosníumenn að eyðileggja partý Kanadamanna

Read Full Article →

FRÉTTAVAKT HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Bosníumenn að eyðileggja partý Kanadamanna Kanada og Bosnía og Hersegóvína mætast í fyrsta leik B-riðils. Kanadamenn eru gestgjafar mótsins og leika á heimavelli í Toronto. Bosnía leiðir 0-1 í upphafi seinni hálfleiks þrátt fyrir að Kanadamenn hafi sótt mun meira. Leikurinn hófst klukkan 19:00 og er í beinni útsendingu á RÚV2. HM kvöld verður að leik loknum. Bandaríkin - Paragvæ er svo klukkan 01:00 á RÚV. Hér fylgjumst við með öllu því helsta í leik Kanada og Bosníu og Hersegóvínu. Við birtum helstu atvik strax og þau gerast. Jóhann Páll Ástvaldsson 12. júní 2026 kl. 17:17, uppfært kl. 20:15 A A A Fyrir 13 mínútum Þvílík björgun! Kolasinac bjargaði þarna á ótrúlegan hátt. Skot Richie Larye strýkur Vasilj og virðist á leið inn en Kolasinac hreinsar í slánna og út. Kanadamenn voru þarna grátlega nálægt því að jafna metin. Skömmu síðar geysast Bosníumenn fram í skyndisókn og eru sloppnir einir í gegn. Maxime Crepeau kemur lengst út úr markinu og nær að verja. Það er heldur betur komið fjör í þennan leik! Bosnía leiðir enn 0-1 eftir 56 mínútna leik. Fyrir 41 mínútu Kanadamenn með hornapartý Það er lítið um opin færi eins og er en Kanadamenn hafa fengið átta hornspyrnur, sem hlýtur að vera einhvers konar met á HM. Það hefur þó lítið komið úr þessum hornum. Augnablik hálfleiksins hingað til er sennilegar þegar hinn yfirspennti Jesse Marsch tók tryllinginn eftir að Jonathan David klúðraði dauðafæri sínu. Bosnía leiðir 0-1 rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Fyrir 1 tíma – uppfært Bosnía kemst yfir! Jovo Lukic kemur Bosníu yfir eftir hornspyrnu. Kolasinac flikkaði boltanum áfram og Lukic setti boltann í markið af stuttu færi. Þetta er hans fyrsta mark fyrir Bosníu. Við förum svo beint í vatnspásu og DJ-inn ákveður að henda í Wanna Dance With Somebody með Whitney Houston. Súrt lagaval og partýið í Toronto er að súrna ansi hratt. Staðan er 0-1 eftir 24 mínútna leik. Hér má sjá markið. 00:00 01:06 Fyrir 1 tíma David! Þarna fengu Kanadamenn frábært færi. Eftir fyrirgjöf Johnston féll boltinn fyrir fætur Jonathan David í teignum. Hann fékk allan tímann í heiminum til að velja sér horn, því bæði fjær- og nærhornið var opið. Að lokum fór skot hans beint í hramma Vasilj. Þetta var besta færi leiksins. Staðan er 0-0 eftrir 18 mínútur. Fyrir 1 tíma Ákefð Það er eins og það sé meira undir í þessum leik, miðað við leik gærdagsins. Spennan er einhvern vegin áþreifanleg. Bosníumenn fengu hálffæri úr miðjum teignum eftir fast leikatriði en skot Memic fór að lokum hátt yfir. Það er markalaust eftir níu mínútna leik. Fyrir 1 tíma – uppfært Kröftugir Kanadamenn Kanada kemur á fleygiferð inn í þennan leik. Þeir áttu hættulega sókn strax í upphafi og fá horn. Það er gríðarleg stemning á vellinum. Markalaust er eftir mínútu. Fyrir leik. IMAGO Peppaðir. IMAGO Bosníumenn eru mættir til leiks. IMAGO Fyrir 1 tíma Bublé, Alanis Morissette og fiðlumeistari Hvað er að gerast hérna í Toronto! Fyrst fengum við ljúfa tóna frá Michael Bublé og núna er hinn serbnesk-kanadíski fiðlukappi Aleksandar Gajić þjóðsöng Bosníumanna. Svo er engin önnur en Alanis Morissette dregin út fyrir þjóðsöng Kanada sem heitir því frumlega nafni O, Canada. Fyrir 1 tíma Gob?! Það er heljarinnar setningarathöfn að baki. Við fengum auðvitað alla 48 fánana og svo mætti Will Arnett nokkuð óvænt til að keyra áhorfendur í Toronto í gang. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Gob í Arrested Development. Hann hefði alveg mátt taka kjúklingadansinn en það er allt annað mál. Liðin eru klár í þetta og eru að koma inn á völl. Fyrir 1 tíma Bosníumenn í gír Bosníumenn eru að flykkjast á völlinn. Það stefnir í alvöru stemningu í Toronto í dag. Hér má sjá myndband af fylkingu þeirra á leið á völlinn. Ef myndbandið sést ekki má sjá það hér. THIS IS GOING DOWN IN HISTORY! #FIFAWorldCup #CANBIH 🇨🇦🇧🇦 pic.twitter.com/f5cbEu07bk — Bosnian Football (@BosniaNTBall) June 12, 2026 Fyrir 2 tímum – uppfært Bosníumenn mættir í annað sinn Bosníumenn eru mættir á HM í annað sinn en þeir voru með á HM í Brasilíu árið 2014. Þá var Dzeko þeirra stjörnuframherji. Í þetta sinn er hann 40 og enn í fullu fjöri. Hann lék með Schalke í næstefstu deild Þýskalands. Hann er sá langmarkahæsti í sögunni og er með 73 mörk í 148 landsleikjum frá 2007. Dzeko er leynivopn af bekknum og er með markanef af guðs náð þó að það sé farið að hægjast hressilega á honum. Staða á heimslista: 64 Barbarez er grjótharður. Hann skoraði 17 mörk í 47 landsleikjum. EPA / NIDAL SALJIC Baktjaldaleið Barbarez Bosníumenn fóru langa leið á mótið. Fyrst unnu þeir Wales í vítaspyrnukeppni í umspilinu og svo lágu Ítalir í valnum í úrslitaleik. Þeir hafa leitað meira í díaspóru sína síðustu ár, þar sem þeir velja leikmenn í landsliðið sem eiga bosnískar rætur. Fyrir vikið hafa nýir og ferskir leikmenn sem hafa ekki fengið sitt fótboltalega uppeldi í Bosníu orðið fyrirferðameiri í landsliðinu. Þjálfarinn Sergej Barbarez, sem er einn besti leikmaður í sögu Bosníu, hefur sett saman afar skipulagt lið sem getur þó töfrað eitthvað fram á við. Alajbegović fagnar eftir sigurinn gegn Ítölum. EPA / NIDAL SALJIC Mikið mun mæða á Bajraktarević, Dedić og Alajbegović fram á við. Kerim Alajbegović er einn mest spennandi bosníski leikmaður í áraraðir en þessi 18 ára leikmaður var nýverið keyptur til Leverkusen fra´Red Bull Salzburg. Bosníumenn munu spila langt frá framherja sína, reyna að vinna seinni boltann og reyna að finna kantmenn í einn á einn stöðu út á væng. Fyrir 2 tímum Dzeko og Larin á bekk Byrjunarliðin eru klár. Athygli vekur að Cyle Larin er ekki í byrjunarliði Kanada. Þá er hinn fertugi Edin Dzeko á bekk Bosníumanna en hann hefur verið vopn af bekknum. Byrjunarlið Kanada Markvörður Maxime Crépeau Varnarmenn Alistair Johnston Luc de Fougerolles Derek Cornelius Richie Laryea Miðjumenn Stephen Eustáquio (fyrirliði) Ismaël Koné Liam Millar Sóknarmenn Jonathan David Tani Oluwaseyi Tajon Buchanan Byrjunarlið Bosníu og Hersegóvínu Markvörður Nikola Vasilj Varnarmenn Tarik Muharemović (fyrirliði) Sead Kolašinac Amar Dedić Nikola Katić Miðjumenn Benjamin Tahirović Ivan Bašić Amar Memić Sóknarmenn Ermedin Demirović Esmir Bajraktarević Jovo Lukić Fyrir 2 tímum Hversu góðir eru Kanadamenn? Í sjöunda leik sínum á HM leita Kanadamenn enn að fyrsta sigrinum og pressan hefur aldrei verið meiri. Þeir koma í ágætis gír inn á mótið og hafa bara tapað einum af síðustu fimmtán leikjum. Þar á meðal gerði liðið 2-2 jafntefli gegn Íslandi í mars í ár. Jesse Marsch á hliðarlínunni gegn Íslandi. AP/The Canadian Press / Chris Young Hinn bandaríski Jesse March stillir upp í 4-4-2 leikkerfi. Sumir telja hann skrautlegan og hann heillaði ekki marga Breta í stjóratíð sinni hjá Leeds í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur hins vegar náð að smíða saman ágætis liðsheild hjá Kanada. Þetta er fyrsta landsliðið sem hann stýrir. Liðin hans eru iðulega mikil pressulið og hér verður engin undantekning á því. Staða á heimslista: 30 Jonathan David í leik gegn Perú. Mikið mun mæða á honum. EPA / WILLIAM PURNELL Stjörnuleikmenn Það er engum blöðum um það að fletta að Jonathan David er lykilmaður í liðinu. Hann mun leika sem einn af tveimur framherjum, en líklega mun hann falla aðeins neðar en félagi hans í framlínunni. David átti slakt tímabil með ítalska stórliðinu Juventus en lék um árabil með Lille þar sem hann sýndi sínar bestu hliðar. Cyle Larin er á bekknum í fyrsta leik. Hann er við það að ganga til liðs við enska liðið Southampton og hefur leikið víðs vegar um Evrópu síðustu ár. Hann á 30 mörk í 90 landsleikjum en sá markahæsti í sögunni er David með 39 mörk í 77 landsleikjum. Alphonso Davies, vinstri bakvörður Bayern München, er auðvitað stærsta stjarna liðsins en hann er frá vegna meiðsla í fyrsta leik. Miklar vonir eru svo bundnar við Ismael Kone sem átti ágætis tímabil með Sassuolo í ítölsku deildinni í ár. Fyrir 2 tímum Hvernig verður þetta? Stofan byrjar klukkan 18:15 í dag en Adda Baldursdóttir og Arnar Gunnlaugsson verða með Eddu Sif Pálsdóttur. Sérfræðingar Stofunnar hita upp fyrir valda leiki á mótinu. Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir stýra Stofunni og helstu sérfræðingar Stofunnar verða Albert Brynjar Ingason, Eiður Smári Guðjohnsen, Adda Baldursdóttir, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Arnar Gunnlaugsson. Hvenær verður Stofan? En hvenær verður Stofan? Það eru fjórtán mismunandi leiktímar á mótinu og leikið verður frá 16:00 á daginn til 04:00 að nóttu til. Því eru ekki fastir tímar á Stofunni. Stofan hitar upp fyrir leiki á hverjum degi. Oftast er Stofa fyrir leiki síðdegis og snemma kvölds. HM kvöld gerir upp leiki dagsins á hverjum leikdegi. Þá er einnig Stofa fyrir stærri leiki snemma dags. Fyrir 3 tímum – uppfært Svona berðu fram nöfnin FIFA hefur síðustu daga birt skemmtileg myndbönd þar sem leikmenn bera fram nöfnin sín. Hér má sjá Kanadamenn spreyta sig á því. 00:00 00:29 Hér eru svo bosnísku nöfnin. 00:00 00:22 Svo má hér sjá klippu til að gíra sig upp í leikinn. 00:00 00:33 Fyrir 3 tímum Standast Kanadamenn pressuna? Kanadamenn hafa beðið eftir þessum degi í 8 ár, eða allt frá því það kom í ljós að þjóðin myndi halda HM ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó. Heimamenn eru vongóðir þar sem þetta er talin gullkynslóð Kanada og í raun langbesta liðið sem þeir hafa átt. Liðið fór á HM 2022 en var eina liðið sem tapaði öllum leikjum sínum þar. Áður hafði liðið farið á HM 1986 en liðið hefur aldrei farið upp úr riðlinum. Strákarnir hans Jesse Marsch eru klárir í slaginn en Bosnía komst óvænt á HM í gegnum umspilið. Þeir eru alveg tilbúnir í að eyðileggja kanadíska partýið í Toronto. Leikið er á BMO vellinum, heimavelli Toronto FC, en þetta er minnsti völlurinn á HM í ár. Þeir bættu við 17.000 tímabundnum sætum og völlurinn tekur því 45.000 manns. Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV

Share this article