Bosnía komst yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki eftir horsnpyrnu. Lukic tróð boltanum yfir línuna eftir að Kolasinac hafði flikkað boltanum. Kanadamenn sóttu án afláts og voru með níu hornspyrnur í hálfleik. Að lokum jafnaði Cyle Larin metin fyrir heimamenn en framherjinn var nýkominn inn á. Markið kom á 78. mínútu en Larin sneri vel og náðu góðu skoti í fjærhornið eftir að Promise David hafði flikkað boltanum á Larin. Bæði lið eru því með eitt stig í B-riðli. Kanadamenn leita enn að sínu fyrsta sigri á HM eftir sjö tilraunir.