Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Önnur eins kúvending hefur ekki sést

Read Full Article →

Það verður að segja að leikur Sviss gegn Bosníu og Hersegóvínu var einn leiðinlegasti leikur mótsins hingað til, eða allt þangað til að hann fór á fleygiferð. Bosníumenn voru með eitilharðan varnarmúr og Sviss ekki með nægilega mikinn sóknarkraft. Johan Manzambi, ungur miðjumaður Freiburg, reyndist algjör leikbreytir. Sviss vann að lokum 4-1 sigur en það er eiginlega ótrúleg staða miðað við gang leiksins. Svo kom Manzambi af bekk Sviss og hleypti lífi í leikinn. Hann náði glæsilegu skoti á lofti og við það varð leikurinn allt annar. Markið kom á 76. mínútu og síðan fylgdu fjögur önnur og rautt spjald. Eftir 76 mínútur af engu fengum við 20 mínútur af öllu, en sex mörkum var bætt við. Muhamedovic fékk rautt er hann tók Embolo niður sem aftasti maður. Vargas skoraði næsta mark með góðu skoti í fjærhornið á 84. mínútu. Manzambi bætti svo þriðja marki Sviss við með skoti af stuttu færi eftir góðan undirbúning Vargas. Bosníumenn skoruðu sárabótarmark með bylmingsskoti Mahmic eftir hornspyrnu sem fór gegnum næstum því 20 manna þvögu. Sviss voru ekkert hættir samt. Bosníumenn fóru í glæfralega tæklingu í teignum og Xhaka skoraði úr vítaspyrnunni sem fylgdi. Markið kom á 96. mínútu og dómarinn flautaði strax af. Þar með er Sviss svo gott sem komið í 32-liða úrslit og reif sig í gang eftir vonbrigðajafntefli gegn Katar í fyrsta leik. Helstu atvik leiksins: Eftir 76 mínútur af engu fengu áhorfendur 20 mínútur af öllu í 4-1 sigri Sviss gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Share this article