Kanadamenn sýndu allar sínar bestu hliðar í Vancouver í kvöld er þeir unnu 6-0 sigur á lánlausum Katörum. Kanada hreinlega tjaldaði í teig Katar og setti nýtt met. Aldrei áður hefur lið frá CONCACAF, knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku, skorað sex mörk á heimsmeistaramóti. Sigurinn var þó dýrkeyptur þar sem lykilmaðurinn Ismael Kone fór út af vegna meiðsla. Kone fótbrotnaði og verður ekki meira með á mótinu. Assim Omer Madibo fékk beint rautt fyrir brotið sem virtist vera óviljaverk. Kanadamenn reiddust honum mikið. Saliba, sem kom inn á fyrir Kone, fagnaði næsta marki beint úr aukaspyrnu með því að halda uppi treyju Kone. Athygli vekur að Infantino virtist langt frá því kampakátur þegar myndavélin fór á hann. Hann hefur búið í Katar frá því að landið hélt HM 2022 og er auk þess flogið um heiminn í einkaflugvél í boði Qatar Airways. Þróun leiksins Kanadíska veislan byrjaði á 16. mínútu með marki Cyle Larin. Jonathan David bætti öðru marki við á 29. mínútu. Útlitið varð þó fyrst svart fyrir Katar þegar Homam El Amin fékk reisupassann á 33. mínútu. David bætti öðru marki við á 45. mínútu og staðan 3-0 í hálfleik. Katar hafði þó bjargað á línu skömmu áður. Í seinni hálfleik fékk Assim Madibo rautt spjald fyrir brot á Kone sem fótbrotnaði illa. Saliba skoraði mark á 63. mínútu og fagnaði með treyju Kone. Katar gerði sjálfsmark á 78. mínútu. Fyrsta sinn í 66 ár Jonathan David fullkomnaði þrennu sína í uppbótartíma. Þetta er fyrsta þrenna heimamanns á HM frá 1966, þegar Englendingurinn Geoff Hurst skoraði þrennu í úrslitaleiknum er Englendingar urðu heimsmeistarar. Hvað þýða úrslitin? Kanada er nú í efsta sæti riðilsins og eftir fylgja Sviss, Bosníu og Hersegóvínu og Katar. Sviss vann 4-1 sigur gegn Bosníumönnum og eru Kanada og Sviss í ágætis málum. Bosnía og Katar mætast í hálfgerðum úrslitaleik um sæti í 32-liða úrslitum í lokaumferðinni. Sigur gæti komið öðru hvoru liðinu áfram en jafntefli gerir lítið fyrir liðin.