Það gæti farið sem svo að hollenski þjálfarinn Dick Advocaat grípi aftur um stjórnartauma Curaçao eftir að hafa hætt af persónulegum ástæðum í lok febrúar. Knattspyrnusamband Curaçao gaf út yfirlýsingu í gær þess efnis að samlandi Advocaat, Fred Rutten, væri hættur með liðið eftir einungis tvo mánuði í starfi. Í yfirlýsingunni kemur fram að staða Rutten hafi ekki verið rædd heldur hafi hann einfaldlega óskað eftir því að fá að hætta en sögusagnir hafa verið um óeiningu innan liðsins eftir að Advocaat hætti og er það vilji leikmanna að hann snúi aftur nú þegar þjálfarastóllinn er laus. Curaçao eru nýliðar á HM eftir að hafa tryggt sér þátttökurétt með því að enda efst í undankeppnisriðli með Jamaíku, Trínidad og Tóbagó og Bermúda. Dick Advocaat þurfti að hætta þjálfun liðsins vegna veikinda dóttur sinnar en hún er á batavegi og hefur þessi 78 ára gamli þjálfari, sem yrði sá elsti á HM fari það svo að hann taki aftur við, sagt að hann sé opinn fyrir því að snúa aftur sem þjálfari liðsins og stýra þeim á sögulegu heimsmeistaramóti.