Curacao sló met Íslands sem fámennasta þjóð í sögu HM og þjálfari liðsins, Dick Advocaat, varð í dag sá elsti í sögu HM. Þýskaland sló met og er nú markahæsta lið í sögu heimsmeistaramótsins. Þeir tóku fram úr Brasilíu og hafa nú skorað 239 mörk gegn 238 mörkum Brasilíu. Eftir leik: Sögulegt hjá bláu öldinni en Þjóðverjar í öðrum gír Þjóðverjar unnu að lokum 7-1 sigur en Curacaomenn fengu sínar tuttugu mínútur í sólinni eftir að liðið jafnaði metin í fyrri hálfleik. Liðsmenn bláu öldunnar voru á köflum í fyrri hálfleik sprækir og þeir mega eiga það að þeir þorðu að spila. En getumunurinn var hreinlega allt, allt of mikill. Þjóðverjar fóru nokkuð létt í gegnum leikinn, náðu að rúlla á liðinu og auk þess komu þeir Kai Havertz í gang. Leikurinn virkaði nett óþægilegur fyrir hálf kærulausa Þjóðverja á stuttum kafla í fyrri hálfleik. En eftir að þeir skoruðu annað markið var bara að fara að vera ein niðurstaða. Markaskorarar Þjóðverja : Nmecha (6'), Schlotterbeck (38'), Havertz (45+5', víti), Musiala (47'), Brown (68'), Undav (78'), Havertz (88') Mark Curacao: Comenencia (21') Curacao sló met Íslands sem fámennasta þjóð sögunnar en þeir telja aðeins tæplega 160.000 manns. Þá varð Dick Advocaat elsti þjálfari í sögu HM en hann er 78 ára. Comenencia er orðinn að þjóðhetju í Curacao eftir mark sitt. Það er nóg fyrir Curacao-fólk, hvort sem er í höfuðborginni Willemstad eða díaspóru-höfuðborginni Rotterdam. Þjóðverjar unnu afar öruggan 7-1 sigur. Þýskaland komst yfir snemma leiks en Curacao menn náðu að jafna metin. Curacao menn eiga hrós skilið fyrir að reyna að spila fótbolta allan leikinn en Þjóðverjar voru hreinlega allt of sterkir.