Þjóðverjar vinna að lokum 7-1 sigur en Curacaomenn fengu sínar tuttugu mínútur í sólinni eftir að liðið jafnaði metin í fyrri hálfleik. Liðsmenn bláu öldunnar voru á köflum í fyrri hálfleik sprækir og þeir mega eiga það að þeir þorðu að spila. En getumunurinn var hreinlega allt, allt of mikill. Þjóðverjar fóru nokkuð létt í gegnum leikinn, náðu að rúlla á liðinu og auk þess komu þeir Kai Havertz í gang. Leikurinn virkaði nett óþægilegur fyrir hálf kærulausa Þjóðverja á stuttum kafla í fyrri hálfleik. En eftir að þeir skoruðu annað markið var bara að fara að vera ein niðurstaða. Markaskorarar Þjóðverja : Nmecha (6'), Schlotterbeck (38'), Havertz (45+5', víti), Musiala (47'), Brown (68'), Undav (78'), Havertz (88') Mark Curacao: Comenencia (21')