Bandaríski bílaframleiðandinn Ford, ásamt öðrum fyrirtækjum, hefur hingað til fengið ítrekaðar synjanir frá ríkisstjórn Donalds Trumps um undanþágur frá áltollum. Á vef WSJ segir að tollarnir hafi hækkað rekstrarkostnað Ford um tæpan milljarð dala. Ford hefur orðið sérstaklega fyrir barðinu á tollunum, sérstaklega í ljósi þeirra eldsvoða sem áttu sér stað í álvalsverksmiðju Novelis í Oswego í New York í fyrrahaust. Um er að ræða stærsta framleiðanda á þunnum álplötum fyrir bílaframleiðendur í Bandaríkjunum en verksmiðjan þjónustar meðal annars Ford, Stellantis og General Motors. Ford hafði reitt sig mikið á verksmiðjuna fyrir framleiðslu á F-150 pallbílum fyrirtækisins. Sjá einnig Margra mánaða röskun á bílaframleiðslu Eldsvoðinn kostaði Ford tæpa tvo milljarða dala og gerir bílaframleiðandinn ráð fyrir að þurfa að eyða milljarði dala til viðbótar í innflutt ál á þessu ári, sem gæti aukið kostnaðinn enn frekar fyrir viðskiptavini.