Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Trump undirbýr nýja tolla á 60 lönd

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirbýr nú að leggja nýja tolla á tugi landa, jafnvel strax í þessari viku, samkvæmt heimildarmönnum Financial Times . Talið er að tollarnir verði á bilinu 10-12,5% og nái til innflutnings frá 60 löndum. Ráðgjafar Trump vara hann þó við mögulegum efnahagslegum áföllum í líkingu við þau sem fylgdu tollunum tollastríðinu sem hófst í fyrra, nú þegar styttist í miðkjörtímabilskosningar í Bandaríkjunum. Bandarískir embættismenn hafa undirbúið nokkrar leiðir sem gera Trump kleift að innleiða nýja tolla á tugi landa þegar almennir tollar forsetans upp á 10% renna sitt skeið síðar í þessari viku. Trump tilkynnti í gærkvöldi um til stendur að leggja á 50% tolla á ákveðinn innflutning frá Kanada. Bandaríska ríkisstjórnin hafði þegar tilkynnt um 25% tolla á brasilískan innflutning. Með nýju tollunum hyggst ríkisstjórnin bregðast við því að Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í febrúar síðastliðnum að þeirri niðurstöðu að hluti tollanna sem Trump tilkynnti á „frelsisdeginum“ 2. apríl 2025 hafi verið ólögmætur og var bandarískum tollyfirvöldum gert að endurgreiða þá. Í kjölfar dómsins tóku bandarísk stjórnvöld upp 10 prósenta almennt tollakerfi, en þær ráðstafanir eiga að renna út á föstudag. Gert er ráð fyrir að nýju tollarnir verði innleiddir á grundvelli rannsóknar á nauðungarvinnu, sem gerir Trump kleift að komast hjá því að styðjast við neyðarheimildirnar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi. Gert er ráð fyrir að fyrstu nýju tollarnir verði svipaðir að umfangi og þeir 10 prósenta tollar sem nú eru í gildi. Stjórnvöld vinna þó jafnframt að öðrum rannsóknum sem gætu veitt þeim lagalega heimild til að leggja á enn hærri tolla. Háttsettir embættismenn hafa ráðlagt forsetanum að viðhalda stöðugleika í samskiptum við viðskiptaríki Bandaríkjanna og standa við þá samninga sem Washington gerði við þau árið 2025 um lækkun tolla, samkvæmt tveimur heimildarmönnum FT.

Share this article