Donald Trump Bandaríkjaforseti brást fljótt við úrskurði Hæstaréttar um að verndartollar sem hann lagði á fjölda ríkja á síðasta ári væru ólöglegir. Forsetinn undirritaði tilskipun í gær um 10% toll á allan innflutning til Bandaríkjanna. Sá byggir á annarri heimild í lögum en þeirri sem var dæmd ólögleg. Síðdegis í dag hækkaði Trump tollana svo í 15%. Þessir tollar mega gilda mest í 150 daga og þingið þarf að samþykkja framlengingu. Ísak Einar Rúnarsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, segir vendingarnar slæmar fyrir alþjóðleg viðskipti. „Óvissa er alltaf slæm fyrir viðskipti, óvissa er alltaf slæm fyrir verðmætasköpun. Þannig að heilt yfir myndi ég segja að þetta séu slæmar fréttir fyrir alþjóðahagkerfið. Hvernig það á eftir að koma niður á einstaka löndum er svona að koma í ljós og mun halda áfram að koma í ljós næstu vikur og jafnvel mánuði. En óvissuferðin heldur áfram,“ segir Ísak Einar. Rætt var við Ísak Einar um tollana bandarísku í sjónvarpsfréttum í kvöld. Ísak Einar Rúnarsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, segir óvissu slæma fyrir viðskipti og verðmætasköpun. Óvissuferðin haldi nú áfram í kjölfar vendinga er varða bandaríska innflutningstolla síðustu tvo sólarhringa. Vöruútflutningur til Bandaríkjanna staðið í stað Ísak Einar segir rosalega erfitt að gera áætlanir í aðstæðum eins og nú eru. „Það er það sem íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir. En svona efnislega þá er staðan er að það var 15% tollur og það mun halda áfram að vera 15% tollur. Þannig að vonandi dregur það úr óvissunni og óþægindunum við þessar vendingar,“ segir Ísak Einar. Möguleg áhrif séu þó að óvissa geri íslenskum útflytjendum erfiðara fyrir að eiga í viðskiptum. Þá segir Ísak Einar þessar sveiflur fram og til baka geta haft áhrif á útflutning til Bandaríkjanna. „Við sjáum það að Landsbankinn, til dæmis, tók saman nýlega tölur yfir útflutning á síðasta ári. Á meðan vöruútflutningur til annarra landa en Bandaríkjanna er að aukast er vöruútflutningur til Bandaríkjanna svolítið að standa í stað. Hvort það er vegna tollanna nákvæmlega eða einhvers annars er erfitt að segja á þessum tímapunkti en við vitum það að heilt yfir draga tollar úr alþjóðaviðskiptum.“