Björgvin Þór Rúnarsson og Ómar Már Jónsson eru mennirnir á bak við sýninguna Iceland Golf Expo sem fram fer í Laugardalshöllinni helgina 7. og 8. mars. Nokkuð er um liðið síðan haldin hefur verið stór sýning fyrir golfhreyfinguna og iðnaðinn sem henni tengist hérlendis jafnvel þótt golfíþróttinni hafi vaxið fiskur um hrygg alla þessa öld. Björgvin fékk hugmyndina og fékk í framhaldinu Ómar Má til liðs við sig. „Ég er mikill golfáhugamaður þótt ég geti ekki neitt. Ég byrjaði að spila golf af einhverju viti fyrir tveimur árum. Tengdaforeldrar mínir eru hins vegar miklir golfarar og sportið hefur því verið mikið í fjölskyldunni. Ég taldi mig aldrei hafa tíma til að fara í golfið en er nú kominn á kaf í þetta,“ segir Björgvin og hagar sér nú eins og þeir sem hann hneykslaðist á áður en hann fékk sjálfur golfbakteríuna. Sjá einnig Árshátíð kylfinga á Íslandi „Þegar ég var á fullu í handboltanum í gamla daga fussaði ég yfir því hvernig fólk gat verið heltekið af golfi. Fólk virtist nánast verið andsetið og gat varla talað um annað en einhverjar minningar af golfvellinum. Ég áttaði mig ekki á þessu en eftir að ég fór alveg inn í golfíþróttina síðasta árið er ég farinn að skilja þetta betur. Maður þarf ekki að slá nema eitt gott högg, þá gleymir maður öllu því veseni sem maður hefur verið í á golfvellinum. Það er heillandi en samvera með fjölskyldunni er einnig stór kostur við þetta sport. Mér fannst vanta viðburð og sýningu fyrir golfhreyfinguna á Íslandi. Golfsýning af þessari stærðargráðu hefur ekki verið haldin lengi á Íslandi. Ég fékk þá hugmynd að þessari sýningu, Iceland Golf Expo, þar sem við myndum búa til sýningu og vörumerki sem við gætum verið stolt af. Ég fékk Ómar með mér í verkefnið, en hann verið hefur mjög lengi í þessum sýningabransa.“ Búa þarf til upplifun fyrir gesti Ómar segir augljóst að mikil tækifæri felist í golfáhuga Íslendinga. „Þegar Björgvin fór að ræða við mig um Golf Expo áttaði ég mig strax á því að hér væri um gríðarlegt tækifæri að ræða. Þótt ég sé ekki virkur í golfhreyfingunni í dag veit ég að golfáhugi á Íslandi hefur vaxið hratt um langt skeið. Þegar við Íslendingar fáum áhuga á einhverju förum við gjarnan alla leið, “segir Ómar og bætir við að honum kæmi ekki á óvart þótt hlutfall kylfinga á Íslandi væri með því hæsta í heiminum miðað við höfðatölu. Sjá einnig Golfáhuginn hefur farið fram úr öllum væntingum Hann rifjar jafnframt upp að hafa sjálfur spilað golf í tvö sumur fyrir mörgum árum og stefnir á að taka upp þráðinn að nýju næsta sumar. Ómar hefur mikla reynslu af því að halda sýningar af þessu tagi og segir slíkt vera ákveðið listform. Hann stendur einnig að sýningunni FIT&RUN, sem haldin er árlega í Laugardalshöll samhliða afhendingu skráningargagna fyrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. „Þú ert í raun að skapa upplifun fyrir gesti sem mæta með ákveðnar væntingar. Markmiðið er auðvitað að fólk fari heim ánægt, helst í skýjunum. Vekja þarf áhuga gesta og hvetja þá til að kynna sér það nýjasta sem er í boði. Sýningar eru einn fullkomnasti vettvangurinn fyrir fyrirtæki til að komast í beint samband við viðskiptavini sína,“ segir Ómar. Að hans mati eru sýningar á greinilegri uppleið. „Áhuginn er til staðar og það má sjá bæði á fjölda sýninga hér á landi og aukningu í fjölda gesta sem sækja slíka viðburði. Fyrirtæki eru í auknum mæli að átta sig á því hversu öflugur vettvangur þetta er til að byggja og styrkja vörumerki sín, skapa tengsl og hversu mikilvægt það er að vera sýnileg gagnvart sínum markhópi.“ Ómar Már Jónsson ásamt afastráknum Arnóri Atla Bjarkasyni. © Aðsend mynd (AÐSEND) Hugsa einnig til framtíðar Þeir félagar eru afar ánægðir með viðtökurnar. „Skráningin fór fram úr björtustu vonum. Tæplega 60 fyrirtæki taka þátt og hvert pláss er skipað. Ég held að það lýsi ágætlega áhuga Íslendinga á golfinu og um leið útivist og heilsu yfir höfuð. Sjá einnig Rafbíladrægnin kemur þér á hvaða golfvöll sem er á landinu Við vonumst eftir því að gestirnir á sýningunni geti orðið á milli 10 og 15 þúsund þessa helgi,“ segir Björgvin og Ómar bætir við: „Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum þessa sýningu en við teljum okkur um leið vera að selja næstu sýningu og stefnan er að Iceland Golf Expo verði á tveggja ára fresti. Þeir sem taka þátt í þessu með okkur núna geta þá fengið forgang að básnum á næstu sýningu.“ Björgvin bendir á að Golfsambandið hafi ákveðið að taka þátt í sýningunni, en GSÍ er jú regnhlífarsamband fyrir golfklúbba landsins. „Við lögðum upp með að fá sterka samstarfsaðila með okkur, sem eru Brimborg, Golfskálinn og Viðskiptablaðið auk þess sem Golfsamband Íslands er samstarfsaðili. Mér fannst mikilvægt að GSÍ væri með í þessu og þá er sýningin sterkari. Þau styðja við þetta þótt þau beri enga ábyrgð á sýningunni eða neitt slíkt. Ég lít á þetta sem upplýsinga- og kynningarhelgi en einnig árshátíð þeirra sem eru í golfi. Þarna munu kylfingar hitta mann og annan sem þeir kannast við héðan og þaðan af landinu.“ Greinin birtist í sérblaði Viðskiptablaðsins, Golf Expo 2026 .