Í sinni einföldustu mynd má segja að afrekskylfingarnir Ragnhildur Sigurðardóttir og Þorsteinn Hallgrímsson, Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður og Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður hafi leikið saman 18 holu golfhring. Þessi golfhringur var hins vegar ekkert venjulegur golfhringur. Ef til vill er hann einstakur á heimsvísu. Þau léku 18 holur á 18 mismunandi golfvöllum hringinn í kringum Ísland. Ekki var nóg með það, heldur þurftu þau að ljúka hringnum á einum sólarhring. Tökumaður frá Stöð 2 var með í för og var sýnt frá golfhringnum á Stöð 2 sumarið 2008. Viðskiptablaðinu þótti skemmtilegt að rifja upp þetta óvenjulega uppátæki og fékk Ragnhildi til að taka út úr minningabankanum. Hana þarf ekki að kynna fyrir kylfingum, enda margfaldur Íslandsmeistari, golfkennari og fararstjóri svo eitthvað sé nefnt. „Hugmyndin kviknaði hjá manni sem tengist Loga Bergmanni og Logi greip þetta á lofti því honum fannst hugmyndin frábær. Logi hafði samband við okkur þrjú og við sögðum auðvitað öll já um leið. Hugmyndin var svo skemmtileg og þar að auki gert til styrktar MND- samtökunum,“ segir Ragnhildur en henni þykir einna eftirminnilegast með hversu fjölbreyttum hætti þeim var komið á milli staða. „Við fórum um landið með alls kyns farartækjum og þetta var svo mikið ævintýri. Ég hafði til dæmis aldrei farið upp í þyrlu á ævinni. Þetta var stórkostleg upplifun,“ segir Ragnhildur, en ferðin hófst í beinni útsendingu á Stöð 2. Í beinni útsendingu „Innslag var gert í kvöldfréttum Stöðvar 2 þegar við fórum af stað miðvikudagskvöldið 2. júlí og ákveðið var að við myndum ljúka leik áður en kvöldfréttatíminn færi í loftið kvöldið eftir. Þá áttum við sem sagt aftur að vera tilbúin í beina útsendingu og þá í Grafarholtinu. Það náðist en það mátti kannski ekki miklu muna. Við hlupum restina á 15. brautinni,“ segir Ragnhildur, en fyrsta holan í golfhringnum óvenjulega var leikin í Borgarnesi. „Við byrjuðum í Borgarnesi. Keyrðum þangað og lékum eyjaholuna, sem er 8. holan. Við keyrðum yfir á Akranes og þar hittum við Guðjón Sigurðsson, formann MND-samtakanna. Við lékum 6. brautina á Skaganum og mig grunar að hún hafi verið valin vegna þess að þar fór ég eitt sinn holu í höggi og fékk albatross. Frá Akranesi fórum við með hraðbáti frá Rib Safarí og veðrið var stórkostlegt. Hlýtt í lofti og logn. Fuglarnir flugu í kringum okkur og hvalir létu sjá sig á leiðinni. Við fórum í land við golfvöllinn á Seltjarnarnesi og klöngruðust upp úr fjörunni til að komast þangað. Þar spiluðum við 8. brautina,“ útskýrir Ragnhildur og þá tók við allt annar fararskjóti. „Þá vorum við sótt á skellinöðrum en mig minnir að Gunnar Hansson leikari [og mikill golfáhugamaður] hafi þekkt einhvern sem var með skellinöðruleigu. Þá var ekkert annað í stöðunni en að setja á sig hjálm og láta skutla sér á skellinöðru. Við vorum keyrð frá Nesinu og út á Reykjavíkurflugvöll.“ Flogið vestur á firði Eftir að hafa leikið á Nesvellinum var kominn tími til að fara í loftið. „Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson tók á móti okkur á Reykjavíkurflugvelli. Hann skaffaði flugvél og var með okkur í fluginu. Flogið var með okkur á Þingeyri og þar spiluðum við Stífluna eða 7. holuna. Þaðan fórum við yfir á Ísafjörð og lékum 9. brautina,“ segir Ragnhildur, en flugmennirnir biðu ávallt þolinmóðir meðan hópurinn lék eina holu á hverjum stað. „Frá Ísafirði var flogið norður og við lékum 9. brautina á Sauðárkróki. Það gat sparað tíma að spila brautir sem lágu upp að golfskálunum á hverjum stað. Við gerðum það einnig á Akureyri, enda er skemmtilegt að fylgjast með fólki slá á 18. holunni á Jaðarsvelli frá pallinum við golfskálann. Við héldum þá yfir á Dalvík og spiluðum 9. brautina, sem er par 5. Fyrir norðan spiluðum við einnig á Húsavík og lékum þar 4. holuna, sem er einnig par 5 og er kölluð Rennan.“ Ragnhildur, Logi Bergmann og Þorsteinn í tökum í hringferðinni. © Kylfingur.is (Kylfingur.is) Humarpizza á Hornafirði Þegar hér er komið sögu er komið fram á morgun og flogið var þá frá Húsavík yfir í Neskaupstað. „Þar spiluðum við 8. brautina og á Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum spiluðum við 8. brautina. Þar eru klettar sem hægt er að slá yfir ef kylfingar vilja reyna við flötina í upphafshögginu. Frá Egilsstöðum var flogið á Höfn í Hornafirði. Þar spiluðum við fræga holu þar sem maður sér jökulinn í baksýn. Það var 3. brautin á vellinum. Ég man að á Hornafirði var kominn tími til að fá sér eitthvað að borða og við fengum humarpizzu. Það er ein besta pizza sem ég hef smakkað.“ Næst var farið á hinn stórbrotna golfvöll í Vestmannaeyjum og þar varð 8. brautin fyrir valinu. „Við fengum fylgd í Vestmannaeyjum því allir krakkarnir og unglingarnir sem voru á golfnámskeiði hjá Karli Haraldssyni í Eyjum gengu með okkur. Það var dásamlegt. Því næst flugum við frá Eyjum til Keflavíkur. Við lentum sem sagt í Keflavík en spiluðum næst í Sandgerði áður en við fórum í Leiruna. Þar er stutt að keyra á milli. Þar spiluðum við Bergvíkina að sjálfsögðu.“ Upplifun að ferðast í þyrlu Veðrið hafði breyst á fimmtudeginum frá því sem var þegar hópurinn hóf hringferðina kvöldið áður. Nú var að sögn Ragnhildar orðið nokkuð hvasst. „Þyrla frá Norðurflugi kom og sótti okkur til Keflavíkur. Mér fannst það vera svo brjálæðisleg upplifun að fara með þyrlunni að ég er enn að hugsa um það. Það var mögnuð upplifun. Þyrlan flaug með okkur á Voga og við spiluðum á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd. Þaðan var stutt að fara yfir á Hvaleyrina og við spiluðum 2. brautina hjá Keili. Við fórum einnig 7. brautina í Oddinum í Garðabæ áður en þyrlan fór með okkur í Grafarholtið. Þar lauk þessum hring á 15. holunni í Grafarholti og var tekið á móti okkur á 15. flötinni. Þar var Guðjón formaður MND-samtakanna aftur mættur til að fagna okkur. Þá var auðvitað fullur völlur af kylfingum enda vorum við á ferðinni í kvöldmatnum um hásumar.“ Þyrlan býr sig undir lendingu á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. © Kylfingur.is (Kylfingur.is) Myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson tók golfhringinn upp, en hann hefur heldur betur gert það gott á ferli sínum. Friðrik er orðinn eftirsóttur myndatökumaður á erlendum vettvangi og hefur síðustu árin unnið við sjónvarpsútsendingar á mörgum stærstu golfmótum heimsins. Friðrik tjáði greinarhöfundi í óformlegu spjalli að hann hefði af og til sagt erlendum kollegum sínum frá þessum ævintýralega golfhring, þar sem farið var hringinn í kringum landið til að spila 18 holur á sólarhring, og að hann hafi tekið upp fyrir sjónvarpsþátt. Friðrik segir að útlendingarnir eigi vart orð yfir því að þetta skuli hafa verið framkvæmanlegt. Fjörugt í fluginu Ragnhildi leiðist ekki að rifja upp hringferðina og þessi upplifun mun seint líða henni úr minni. „Ferðalagið var bara hlátrasköll frá upphafi til enda. Þetta eru svo miklir sprelligosar sem ég var að þvælast með. Ekki bara Logi, Steini og Eyvi heldur einnig Frikki myndatökumaður. Þegar við vorum í háloftunum stundaði Eyvi að gefa skýjunum nöfn. Það var viskí, Spasskí, Monica Lewinsky og allt eftir þessu. En þeir voru svo fyndnir þessir strákar að maður fann ekki fyrir þreytu eða syfju,“ rifjar Ragnhildur upp, en þrátt fyrir milt sumarveður aðfaranótt fimmtudagsins var flugferðin þó ekki eintóm hlátursköst. „Þegar við flugum inn til Akureyrar lenti flugvélin í einhverjum veðuraðstæðum sem urðu til þess að vélin pompaði niður í smástund. Það voru töluverð læti en flugmaðurinn opnaði inn til okkar og róaði okkur. Reyndar hefði þetta getað orðið meira mál því hann rakst utan í og meiddi sig eitthvað. En það slapp til. Þótt við munum eftir þessu atviki í flugvélinni breytir það engu í stóra samhenginu því þessi golfhringur er með því skemmtilegasta sem ég hef gert.“ Á þessum einstaka 18 holu golfhring fór fram liðakeppni þótt aðalatriðið væri að safna fé fyrir MND-samtökin sem raunar heppnaðist prýðilega. Ragnhildur þurfti að vera með Loga Bergmanni í liði og Þorsteinn þurfti að vera með Eyjólfi í liði. Hér er þetta orðalag notað til að stríða þeim Loga og Eyjólfi aðeins en einnig til að undirstrika að getumunurinn á almennum kylfingum og fólki sem orðið hefur Íslandsmeistarar, eins og Ragnhildur og Þorsteinn, er býsna mikill. Svo fór að Þorsteinn og Eyjólfur höfðu betur í keppninni. Logi og Þorsteinn lögðu undir en þó ekki fjármuni, heldur þurfti sá sem tapaði að láta krúnuraka sig. Þorsteinn var ekki lengi að innheimta skuldina og var Logi settur í stól á Grafarholtsvelli þar sem hárið fauk af að mestu. Rétt er þó að taka fram að sjónvarpsmaðurinn var í höndum fagmanneskju og Þorsteinn hafði ekki sjálfur hendur í hári Loga. Þetta atriði gefur góða mynd af því hversu létt var yfir mannskapnum. „Við þekktumst öll nokkuð vel og þess vegna var þetta aldrei vandræðalegt á nokkurn hátt. Frikki þekkti okkur einnig vel og við hann. Þetta gekk því mjög vel. Það var enginn tími til að vera með margar tökur og þetta flæddi því bara,“ segir Ragnhildur. Frábærar móttökur Ferðin hófst í kvöldmatnum miðvikudagskvöldið 2. júlí eins og áður segir. Hópurinn var sitt hvoru megin við miðnætti á norðanverðum Vestfjörðum og um hánótt á Norðurlandi. Leikið var á fimmtudagsmorgninum á Austurlandi og undir hádegi á Hornafirði. Síðdegis var hópurinn á Suðurnesjum og um klukkan 18 í Oddinum. Ragnhildur leggur á það áherslu að hvar sem komið var hafi heimamenn tekið afar vel á móti hópnum. „Það var alls staðar tekið á móti okkur. Það var alveg sama þótt það væri um hánótt. Alls staðar var tekið mjög vel á móti okkur og formenn golfklúbbanna voru iðulega mættir. Þar sem við erum að tala um hringferðina tek ég líka ofan fyrir öllum sem halda utan um golfvellina úti um allt land. Oft eru þetta fáir einstaklingar sem ná þó að halda völlunum góðum og halda úti góðu starfi á litla kalda landinu okkar,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir. Greinin birtist í sérblaði Viðskiptablaðsins, Golf Expo 2026 .