Golf Expo mun snúa aftur í Laugardalshöllina á næsta ári dagana 14. og 15. maí og er forskráning á hátíðina þegar hafin samkvæmt skipuleggjendum. Í tilkynningu segir að hátt í 20 þúsund gestir hafi mætt á sýninguna í ár. Sýningin, sem var haldin í fyrsta sinn í ár, er nokkurs konar árshátíð kylfinga á Íslandi en um er að ræða viðburð fyrir alla þá sem hafa áhuga á golfi. Það eru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Ómar Már Jónsson sem skipuleggja sýninguna og að sögn þeirra endurspeglar aðsóknin í ár vaxandi áhuga á golfi, golfvörum, þjónustu, ferðalögum og öðru tengdu golfi á Íslandi. Sjá einnig Skráningin fór fram úr björtustu vonum Samkvæmt viðhorfskönnun sem gerð var meðal sýnenda að sýningu lokinni sögðust 94,5% svarenda hafa verið ánægðir eða mjög ánægðir með Golf Expo 2026. Þá töldu 91,9% svarenda sig hafa náð markmiðum sínum vel eða mjög vel með þátttöku á sýningunni.